Skólaáriđ hálfnađ
01. febrúar 2010 klukkan 18:41
Nú er skólaárið hálfnað hjá Andra Þór. Við fórum í foreldraviðtal í síðustu viku. Hann auðvitað skoraði kannski ekki hátt, nema í stærðfræði þar fær drengurinn 8. En hann tekur framförum það er fyrir öllu, þótt sporin séu smá. Hann er með svo mikinn athyglisbrest að þroskaþjálfinn hans hafði orð á því að hún hafi ekki séð jafnmikinn athyglisbrest áður. Hann fær líka lágt námsmat í Eikinni en þetta er auðvitað hlutir sem verið er að vinna með. Eikin er sérdeild Holtaskóla fyrir börn með einhverfu. Við erum að fara með hann til barnageðlæknis 17. feb og ætlum að ræða þessi mál við hana. En annars fékk ég símtal frá Guðnýju tengilið á Greiningarstöð í dag. Hún ætlar að tala við yfirmann svæðisskrifstofu fatlaðra á Reykjanesi útaf Ragnarseli og Heiðarholti. Það er að gerast það sem ég vissi að myndi gerast í Frístund. Hann er auðvitað svo þægilegt barn, svo góður og þarf ekkert að hafa fyrir honum. Hann hefur engin félagsleg samskipti við önnur börn, hvort sem það er í bekknum eða í frístund. Ef Frístund er inni, er hann frá 13:15 til 16:00 að teikna á tússtöflu, fær enga örvun og verður í raun vanvirkur. Hann þarf svo miklu meiri örvun og þarf meiri kennslu í að bæta félagsleg samskipti. Þess vegna vil ég koma honum inn á Ragnarsel.
Af okkur er ţađ ađ frétta....
09. janúar 2010 klukkan 01:10
Jæja kannski er tími til kominn að setja inn smá fréttir. Andri Þór hefur átt erfitt með skapið sitt, það sást á andlitinu á mér í gærkvöldi eftir eitt kastið. Það passar að hann fær yfirleitt kast á morgnana og þegar hann kemur heim úr skólanum. Hann braut lukt sem ég á, henti niður kassa af jólaskrauti, þvottasnúru, stólum og öðru lauslegu í kringum hann. Ég endaði með að taka hann með valdi inn í herbergi til að halda honum og á meðan fékk ég að finna fyrir því. Ég get alveg viðurkennt það að ég hefði alveg getað brotnað niður þar en ég hélt því niðri, það hefði örugglega hrætt hann ennþá meira. Við vitum að hann ræður ekki við þetta, áráttuhegðunin og þráhyggjan er að verða meiri og meiri. Hann er kominn á Amelín til að sofna á kvöldin og í dag fékk ég símatíma hjá Sigurði barnalækni og bað um hjálp, sagði honum að hann væri að tala við mjög örvæntingafulla móður sem ég var og er. Á morgun mun ég sækja lyf sem heitir Risen fyrir hann, ætlum að prófa það. Hann á að taka það á morgnana og þegar hann kemur heim eftir skóla. Það er geðdeyfðarlyf. Ef þetta lyf virkar ekki þá kemur til greina að láta hann á Concerta eða Sertral. Ég sótti um skammtímavistun í Heiðarholti í Garðinum fyrir hann, það er biðlisti þannig að ég hef ekki hugmynd hvenær hann kemst inn en alla vega er búið að sækja um. Ég hef þá tíma til að venjast tilhugsuninni. Hann hefði svo gott af því að fara í þetta, alveg eins og við höfum gott af hvíldinni. Andri Þór fer til mömmu á morgun en Gunnar og pabbi eru að fara að parketleggja svefnherbergið okkar, á meðan ætla ég að eiga prinsessudag með prinsessunni minni. Við ætlum í búðir og fara í bíó og kannski hitta Hjördísi.
Andri Þór er byrjaður aftur í skólanum, það hentar honum alls ekki svona frí. Ég athugaði með Ragnarsel aftur, það gekk ekki eftir, því miður. Okkur finnst hann þurfa meiri þjálfun og aðstoð út frá einhverfunni. Þótt mér sé létt að Andri Þór fær lyf til að hemja skapið sitt, er ég pínu áhyggjufull að þetta hafi einhver önnur áhrif á persónuleikann hans. Andri Þór er og verður alltaf einhverfur, ég held að það sé ein af þeim ástæðum að hann er ótrúlega skemmtilegur strákur. Dálítið mótsagnakennt ekki satt?
Smá af prinsessuni. Jóhanna Arna er byrjuð í ballet, fer einu sinni í viku í Brynballet Akademíuna og finnst þetta æði! Mér finnst æði að eiga barn sem vill fara í svona og taka þátt. Hún verður 4 ára þann 2. mars, finnst þetta alltof fljótt að líða.

Tímalína, námskeiđ og fleiri hugleiđingar
18. nóvember 2009 klukkan 20:51
Ég var að rifja upp tímalínuna á röð atburða í leið okkar að greiningu Andra Þórs
Haustið 2007 fór ég til leikskólastjórans á Hjallatúni og bað um hjálp. Sagði að það hlyti að vera eitthvað meira að hjá Andra Þór en bara afbrýðisemi í garð litlu systur.
Nokkrum dögum síðar fengum við tíma hjá Hrund, sem er sálfræðingur hjá Reykjanesbæ og allt ferlið hófst. Að svara alls konar listum um einhverfu, ofvirkni, athyglsibrest og þroskapróf.
Í desember 2007 (17.12.07) fór ég til Hrundar í viðtal, til að taka svokallað CARS próf en CARS er stytting á "Childhood Autism Rating Scale". Ég fór ein, Gunnar var veikur á spítala. Þetta var mjög erfiður tími fyrir mig.
17. Janúar 2008 fór ég með Andra Þór til Hrundar í þroskapróf. Hann skoraði 57 stig. Ég fékk smá sjokk, gerði mér enga grein fyrir hversu illa hann stóð í þroskanum. Talað er um að tornæm börn skori 70 stig. Hrund taldi Andra Þór þurfa mikla aðstoð í leikskóla og síðar meir í skóla.
Mars 2008 sendi Hrund öll gögn til Greiningarstöðvar
Frá Mars 2008 hefst bið...bið...bið...
Maí 2008 er Andri Þór ekki ennþá kominn með meiri stuðning en 1 klst á dag og sérkennslustjórinn á Hjallatúni og leikskólakennarinn hans sagði að hann væri að staðna félagslega. Ég hringdi verulega pirruð og reið í sérkennslustjóra Reykjanesbæjar og heimtaði meiri stuðning fyrir barnið - hún féllst á 50% stuðning. Hún var líka búin að ákveða að barnið væri ekki einhverft - hún bara sæi ekki einhverfu einkennin...talandi um að sjá hlutina ekki í réttu ljósi.
Frá mars til nóvember þá hringdi ég mánaðarlega í Greiningarstöð til að athuga hvort hann væri kominn með tíma og svo sendi ég eitt SOS bréf.
Ég fékk bestu jólagjöfina í heimi þegar ég hringdi í síðasta skiptið á Greiningarstöð til að athuga með tíma, þá var mér sagt að hann væri búinn að fá tíma 5. desember 2008.
9. desember var skilafundur með okkur Gunnari - ég var skíthrædd að hann fengi greininguna "á gráa svæðinu". Gunnar skildi mig ekki, spurði hvort ég virkilega vildi að barnið væri einhverft. Ég svaraði, af tvennu illu vill ég frekar hann greindist með einhverfu því ef hann myndi greinast á gráa svæðinu myndum við missa alla aðstoð og hann allan stuðning og öll sú vinna sem búið væri að vinna yrði fyrir bí. Við fengum greininguna....
Hvernig leið mér?
LÉTTIR - KVÍÐI - LANGTÍMAVERKEFNI!
Ég er búin með námskeiðið í Atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu, nú væri ég alveg til í að fá þjálfunarnámskeið með Andra Þór. Á samt ekki von á því að það verði. Ráðagóðir foreldrar eru líka búnir, það var mjög skemmtilegt námskeið. Við þurftum að búa til fáar, einfaldar og hnitmiðaðar heimilisreglur og svo erum við að fara að byrja með umbunarkerfi fyrir bæði börnin.
Við erum ennþá að kljást við skapið í honum, sendi Guðnýju SOS tölvupóst en ég á ennþá eftir að fá svar.
Jæja læt þetta duga í bili

- Dæmigerð einhverfa
- ADD - athyglisbrestur án ofvirkni en það þarf samt að vera meðvitaður um að ofvirknin getur komið í grunnskóla
- Væga þroskaröskun - skoraði 67 í þroskamati - búinn að hækka sig um 10 stig frá matinu sem Hrund gerði.
- Jafnvæg tvílitningaröskun - vorum búin að fá þetta úrskurðað. Efnin í litningum 2 og 18 hafa algjörlega víxlast. Þessi litningargalli kemur frá Gunnari - hann er með sama litningagalla.
Hvernig leið mér?
LÉTTIR - KVÍÐI - LANGTÍMAVERKEFNI!
Ég er búin með námskeiðið í Atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu, nú væri ég alveg til í að fá þjálfunarnámskeið með Andra Þór. Á samt ekki von á því að það verði. Ráðagóðir foreldrar eru líka búnir, það var mjög skemmtilegt námskeið. Við þurftum að búa til fáar, einfaldar og hnitmiðaðar heimilisreglur og svo erum við að fara að byrja með umbunarkerfi fyrir bæði börnin.
Við erum ennþá að kljást við skapið í honum, sendi Guðnýju SOS tölvupóst en ég á ennþá eftir að fá svar.
Jæja læt þetta duga í bili
Lyf
24. september 2009 klukkan 19:23
Ég fékk nóg í morgun að ná ekki drengnum upp úr rúminu fyrir kl 7:30. Hann sofnaði mjög seint og var mjög þreyttur og úrillur og þegar hann vaknar svona seint er maður á öðrum hundraði að gera hann tilbúinn og hann neitar að borða morgunmat, þolir ekki svona asa. Ég fékk símatíma hjá Sigurði barnalækni og hann var sammála mér að eitthvað þyrfti að gera þannig að hann er kominn á lyf sem heitir Amelín. Þurfum að sjá hvort hann þurfi 1 eða 2 töflur fyrir svefn og hvenær er best að hann taki þær. Fyrst byrjum við á 1 töflu klukkan 19 og stefnum að því að hann sofni um klukkan 21. Svo á ég að tala við Sigurð eftir tvær vikur. Svo er spurning að setja hann á annað lyf við hvatvísinni og skapofsanum, það heitir Risperdal. Við erum að bíða eftir að komast að hjá barnageðlækni sem heitir Steingerður, Sigurður sagði að við værum á forgangslista og vonandi komumst við að fyrir jól, en hugsanlega þarf hann að fara á Risperdal fyrir þann tíma.
Ég vona að þetta eigi eftir að hafa betri áhrif á Andra Þór og okkur...því við erum þreytt!

Helgin
20. september 2009 klukkan 23:00
Helgin var róleg og góð, fyrir utan kvefið sem ég er búin að fá aftur! Hélt ég væri búin með flensu & kvefpakkann í bili. Við fjölskyldan fórum í myndatöku á laugardaginn, fáum myndirnar sendar á diski í næstu viku, get ekki beðið! Eftir myndatökuna fór Andri Þór til mömmu og við sóttum hann í kvöld. Hann eyddi helginni í skrifstofuleik og var eiginlega ekki sáttur að koma heim, sagðist sakna ömmu sinnar. Ljótt að segja það, en þvílíkur léttir fyrir alla að hafa ekki allt á háa C'inu.
Ég sé í samskiptabókinni hans Andra Þórs úr skólanum að í frímínútum leikur hann sér með einum dreng og ég komst að því á föstudaginn að það sé hinn einhverfi drengurinn í fyrsta bekk. Þeir "leika sér saman" á þeirra eigin forsendum. Veit ekki hvort það sé hægt að kalla það leik, að leika hlið við hlið og eiga lítil félagsleg samskipti en einhvern vegin virðist að þeir nái saman, enda með sömu fötlun. Andri Þór er voðalega ánægður í skólanum og vill læra, en hans raskanir gera það honum afskaplega erfitt fyrir. Hann fylgist mjög vel með umhverfinu sem hann er í, eiginlega of vel því hann gleymir oft því sem hann átti að vera að gera. Honum er algerlega stýrt, enda ekki annað hægt, hann þarfnast þess.
Ég reyni að hafa það alltaf í huganum að ég eigi frábæran strák og hann er svo ótrúlega góður, duglegur og minnugur. Ég hef oft spáð í það hvort ég myndi vilja láta lækna hann af einhverfunni ef það væri hægt og ég hugsa að ég myndi svara því neitandi. Ég get ekki ímyndað mér að hann væri jafn mikill prófessor og skemmtilegur (hann er jafn skemmtilegur og erfiður) ef hann væri ekki einhverfur. Þetta er Andri Þór, Andri Þór er drengur sem á við ákveðna fötlun að stríða. En fötlunin einkennir hann ekki, Andri Þór einkennir fötlunina (er eitthvað vit í þessu?)
Við erum að fara að taka þátt í erfðarannsókn hjá Íslenskri Erfðagreiningu um erfðir á einhverfu. Þurfum að fara í blóðrannsókn og svara þvílíkum spurningum. Talandi um það, ætla að hætta að skrifa núna og fara í gegnum þessa lista.
Dóra

Hlakka til
17. september 2009 klukkan 17:01
Í byrjun október byrjar stuðningshópur foreldra barna með einhverfu aftur hérna í Keflavík. Þar hittast foreldrar (mest mæður) einu sinni í mánuði og tala saman um börnin sín og ráðfara sig við aðra. Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að fundirnir byrja. Það er svo gott að geta bara rætt málin og fengið ráðleggingar frá fólki sem hefur gengið í gegnum það sama.
Ofbeldi
16. september 2009 klukkan 17:41
Andri Þór getur verið mjög ofbeldisfullur. Hann tekur köst. Ég sé þegar hann er að fara í þann gír, þá er þráhyggjan í botni og hann verður mjög óþolinmóður og á endanum fara hlutir bókstaflega að fljúga um herbergið. Núna þegar ég skrifa þetta, er hann inni í herbergi í einu slíku kasti. Ég tók hann hljóðlaust, háttaði hann til að láta hann róa sig. Á meðan þá kleip hann mig, beit mig, lamdi mig, klóraði mig, henti gleraugunum mínum og sparkaði í mig. Ég hélt ró minni, það er erfitt alveg hryllilega erfitt en ég verð að gera það. Núna er hann inni í herbergi, aleinn og þegar ég veit að hann er farinn að róast tek ég hann fram. Ætlast ekki til að drengurinn fari að sofa strax en eitthvað varð ég að gera til þess að taka hann úr þeim aðstæðum sem hann var kominn í, að henda leikföngum um allt herbergi.
Við byrjum á námskeiðinu 29. september og ég hlakka til
Svo þarf Jóhanna Arna að horfa upp á þetta og verða líka fyrir ofbeldinu. Hún er reyndar farin að apa eftir sumum hegðunarmynstrum hans. Ég geri allt sem ég get til þess að hún fái alla þá athygli sem hún þarfnast. Ég er mikið búin að spá hvort við ættum að sækja um skammtímavistun fyrir hann í Heiðarholti, sem er fyrir einhverf börn. Heiðarholt er í Garðinum. Þetta myndi þýða að nokkra daga í mánuði er hann í Heiðarholti með börnum á hans aldri með sömu fötlun og við fengjum smá "breathingspace". En ég veit það ekki, er samt ekki tilbúin að setja hann í þetta. Vinkona mín sem vinnur með mér, á tvo einhverfa stráka og þeir eru þarna nokkra daga í mánuði.

Skilafundur, námskeiđ og fleira...
02. september 2009 klukkan 21:11
Þann 9. september n.k. förum við á skilafund með skólanum upp á Greiningarstöð. Svo erum við að fara á námskeið á Greiningarstöð til að reyna að takast á hegðunarvandamálum Andra Þórs. Þetta eru 6 þriðjudagskvöld í röð frá 29. september. Allt í einu er Andri Þór farinn að hræðast ýmislegt heima fyrir, hlutir sem eiga ekki að hræða. Hann vill t.d. ekki fara einn í hjónaherbergið að sækja hluti eins og bleyju á sig þar, verðum að loka glugganum á baðinu þegar hann á að fara þangað inn. Hljóp inn dauðskelkaður í fyrradag af því það var lítill sóparabíll að sópa götuna hérna fyrir utan og hélt utan um eyrun sín á meðan hann öskraði "ég vil ekki heyra þetta hljóð!!"
Hann er byrjaður í sjúkraþjálfun, hann var voða góður og gerði nánast allt sem Björg bað hann um en hann neitar ennþá að fara á hlaupabrettið til að labba rólega.
Ég talaði við Guðný á Greiningarstöð í dag og hún sagði mér að hún hafði talað við Ragnarsel. Þau á Ragnarseli hafi sagt að þau hafi ekki ennþá fullunnið allar umsóknir þannig að það væri ennþá pínu von að hann kæmist þar inn og lagði hún ofuráherslu að gera allt sem í þeirra valdi stendur að hann komist inn.
Ég verð bara svo reið að hugsa til þess að ástæðan fyrir því að við fengum neitunina var af því Ragnarsel fær ekki fjármagn til að ráða fleira starsfólk! Fyrirgefið en er ekki bullandi atvinnuleysi hérna á Suðurnesjum? Það er núna verið að hneykslast yfir því að Reykjanesbær vilji ekki kaupa einhverja styttu af Rúnari Júl....ok þetta var rosalega góður karl og allt það...blessuð sé minning hans...en afsakið!!! Ef það á að vera leggja fjármagn til einhvers þá vil ég frekar að það fari í þjónustu við börn og fatlaða í þessum bæ...ekki einhvern dauðan hlut eins og styttu!!

Fyrsta vikan hjá skólastráknum
28. ágúst 2009 klukkan 17:23
Nú er fyrsta vikan búin hjá Andra Þór í Holtaskóla. Gekk bara ljómandi vel, gengur reyndar mjög erfiðlega að ná honum niður á kvöldin. Stuðningsfulltrúinn hans heitir Herborg og kennarinn heitir Hafdís. Það er þannig í Holtaskóla að það er einn bekkur en tveir hópar. Svo rúlla þessir hópar á 6 vikna fresti, nema Andri Þór hann verður alltaf í sömu heimastofu með sama kennara. Frístundin hefur gengið vel en hann hefur líka bara verið úti að leika sér, veit ekki hvernig þetta verður í vetur þegar þau verða öll að vera inni vegna veðurs. Við áttum að hitta Guðný í dag á Greiningarstöð en hún er veik. Við förum á skilafund á Greiningarstöð þann 9. sept með skólanum. Þar sem við erum búin að ákveða að nota atferlismótun á hann, er ég búin að skrá okkur á námskeið í nóvember hjá Greiningarstöð. Hann hefur farið á hverjum degi í Eikina (sérdeildin í Holtaskóla) og hitt þroskaþjálfann sem verður með hann, hana Ásgerði. Hann byrjar í sjúkraþjálfun á mánudaginn, verður tvisvar í viku (mán og mið) og fær aksturinn inn aftur - hann fer í "bláa bílinn".
Hann var rosalega spenntur fyrir fyrsta stærðfræðitímanum í skólanum (hmmmm...hvaðan skyldi hann fá þann áhuga) og fannst æði í sundinu.

Skólinn
20. ágúst 2009 klukkan 18:05
Nú er skólasetning hjá Andra Þór á mánudaginn klukkan 13:00 og skólinn byrjar svo á þriðjudaginn :) Andri Þór er 6 ára í dag, vá hvað tíminn er snöggur að líða! Mér finnst svo stutt síðan að ég var að reyna að koma honum í heiminn, en klukkan 16:21 þann 20. ágúst 2003 fæddist lítill og sætur keisari.....3.051 grömm og 51 cm (og ég var með sykursýki nota bene) Í síðustu mælingu þá var hann 23 kg og 118.5 cm (í desember á Greiningarstöð)
Hann er núna í strætó með pabba sínum og systur. Hann elskar strætó og af því hann á afmæli var þetta látið eftir honum, móðirin þurfti að fara á læknavaktina. Hann fór með afmælisköku í Ragnarsel, í dag var hans síðasti dagur. Ég sé mikið eftir Ragnarseli en við höldum áfram að sækja um þar til hann kemst inn. Ég á eftir að sækja um frístund fyrir hann, veit ekki einu sinni hvort hann komist inn þar. En það er komin ákveðin málamiðlun með frístundina, mamma ætlar að sækja hann nokkra daga í viku. Þannig að hann er ekki nema 2 til 3 daga í Frístund á móti því að hann er með ömmu sinni. En ég er að vonast til að hann komist inn á Ragnarsel eftir áramót ef einhver skyldi detta út.
Við erum að fara á fund upp í skóla á morgun, að hitta kennarann hans, stuðningsfulltrúa og líka þroskaþjálfa sem verður með honum. Prinsinn fer auðvitað með.
Við erum búin að kaupa flest fyrir skólann, keypti skólatösku handa honum....ó mæ fríkin....14.995 krónur fyrir eina (má ekki segja orðið hérna) tösku!! Er að spá í að spyrja tengdapabba hvort maður geti tryggt hana sérstaklega.