Helgin
20. september 2009 klukkan 23:00
Helgin var róleg og góð, fyrir utan kvefið sem ég er búin að fá aftur! Hélt ég væri búin með flensu & kvefpakkann í bili. Við fjölskyldan fórum í myndatöku á laugardaginn, fáum myndirnar sendar á diski í næstu viku, get ekki beðið! Eftir myndatökuna fór Andri Þór til mömmu og við sóttum hann í kvöld. Hann eyddi helginni í skrifstofuleik og var eiginlega ekki sáttur að koma heim, sagðist sakna ömmu sinnar. Ljótt að segja það, en þvílíkur léttir fyrir alla að hafa ekki allt á háa C'inu.
Ég sé í samskiptabókinni hans Andra Þórs úr skólanum að í frímínútum leikur hann sér með einum dreng og ég komst að því á föstudaginn að það sé hinn einhverfi drengurinn í fyrsta bekk. Þeir "leika sér saman" á þeirra eigin forsendum. Veit ekki hvort það sé hægt að kalla það leik, að leika hlið við hlið og eiga lítil félagsleg samskipti en einhvern vegin virðist að þeir nái saman, enda með sömu fötlun. Andri Þór er voðalega ánægður í skólanum og vill læra, en hans raskanir gera það honum afskaplega erfitt fyrir. Hann fylgist mjög vel með umhverfinu sem hann er í, eiginlega of vel því hann gleymir oft því sem hann átti að vera að gera. Honum er algerlega stýrt, enda ekki annað hægt, hann þarfnast þess.
Ég reyni að hafa það alltaf í huganum að ég eigi frábæran strák og hann er svo ótrúlega góður, duglegur og minnugur. Ég hef oft spáð í það hvort ég myndi vilja láta lækna hann af einhverfunni ef það væri hægt og ég hugsa að ég myndi svara því neitandi. Ég get ekki ímyndað mér að hann væri jafn mikill prófessor og skemmtilegur (hann er jafn skemmtilegur og erfiður) ef hann væri ekki einhverfur. Þetta er Andri Þór, Andri Þór er drengur sem á við ákveðna fötlun að stríða. En fötlunin einkennir hann ekki, Andri Þór einkennir fötlunina (er eitthvað vit í þessu?)
Við erum að fara að taka þátt í erfðarannsókn hjá Íslenskri Erfðagreiningu um erfðir á einhverfu. Þurfum að fara í blóðrannsókn og svara þvílíkum spurningum. Talandi um það, ætla að hætta að skrifa núna og fara í gegnum þessa lista.
Dóra