Aint it true

Þú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleið þinni, en það eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í þínu hjarta.

Netföng og þess háttar

doram@islandia.is er msn addressan mín

theodoram@simnet.is er netfangið mitt

Innskráningar kubbur

Snúllan 1 árs!

02. mars 2007 klukkan 13:58
Ég skrifaði þetta í vefdagbókina hennar....geri copy/paste :)



Kæru vinir og ættingjar, mig langar að segja ykkur smá sögu...


 
Sá merkilegi og yndislegi atburður gerðist þann 2. mars 2006 klukkan 18:29 á fæðingardeild Landspítalans að gullfalleg prinsessa kom og heiðraði okkur með nærveru sinni.  En þessi fallega stúlka varð eitthvað pínu stressuð í mömmukoti og byrjaði að kúka, en litlar prinsessur og prinsar eiga ekki að gera það fyrr en veru þeirra í mömmukoti er lokið.  Því miður fékk þessi fallega prinsessa mengað legvatn ofan í litlu lungun sín og varð mjög veik.  Myndin sem er hér að ofan er tekin af henni þann 3. mars 2006, þá rétt rúmlega 12 tíma gömul á vökudeild.

En þessi litla fallega prinsessa er hetja!  Hún náði heilsu á ný með hjálp yndislegs starfsfólks upp á Vökudeild landspítalans.  Það var beðið fyrir henni á öllu vígstöðum alveg frá Grindavík til Afríku!  Þann 29. mars 2006 kom þessi fallega prinsessa loksins heim í mömmu, pabba og Andrakot.  Guð bænheyrði okkur og í dag er þessi fallega prinsessa að verða 1 árs!!  Mamma prinsessunnar er i hálfgerðu sjokki því henni finnst hún vera nýbúin að eiga hana.

Myndin hér að neðan er tekin 2. febrúar 2007 og er hún því akkurat 11 mánaða á þessari mynd.  Hún er búin að ganga í gegnum mikið þroskaferli síðan hún kom heim.  Hún er komin með 7 tennur, er farin að skríða, standa upp og er ennþá að spá hvort hún ætti að byrja að labba.  Hún er ákveðin, lætur engann og því síður bróðir sinn ráðskast með sig.  Ég sé hana alveg fyrir mér sem litla ráðskonu á Bjarmalandi á Hjallatúni í framtíðinni.  Hún er pínu eins og bróðir sinn í skapi, finnst óþolandi þegar hlutirnir ganga ekki alveg strax upp og þegar hún er tekin úr aðstæðum þegar hún er að fikta. 

Svo finnst mömmu hennar hún vera með þvílíkt mikið hár og hlakkar mikið til þegar hún getur farið að dúllast með það (greyið barnið...)  Í móðurkviði var hún mjög spræk og tók kollhnísana eins og henni væri borgað fyrir það, í dag er hún alveg eins.  Þolir ekki að láta halda á sér, vil fá að hreyfa sig frjálst.  Færi eflaust í kollhnis ef hún kynni það.


Þann 4. mars n.k. klukkan 14 ætlum við að fagna 1 árs afmæli þessarar prinssessu.  Boðið verður upp á kökur og kaffi að hætti hússins og viljum við bjóða ykkur kæru ættingar og vinir að njóta þessa dags með okkur.  Staðurinn er heimilið okkar í Keflavík, Tjarnargata 2 - neðri hæð.
Mikið þætti okkur gaman að sjá ykkur!
Bestu kveðjur,
Jóhanna Arna, Dóra, Gunnar og Andri Þór

Hælsporar...

22. febrúar 2007 klukkan 14:00
það er það sem er búið er að valda mér þvílíku sársauka í hælnum síðustu 2 ár.  Það sáust greinilegar breytingar á báðum hælum hjá mér en þetta er verra hægra megin.  Hvað er hælspori?  Ekki nema von að þú spyrjir....þetta fann ég á netinu góða:

 

Hvað er hælspori?

Spurning: Hvað er hælspori? Hvað veldur þessum sjúkdómi og hver er meðferðin við honum?


Svar:
Fóturinn er eins og spenntur bogi þannig að maður stendur aðallega í hæl og tær. Það sem heldur boganum uppi er sinabreiða sem festist í tærnar að framan og hælbeinið að aftan. Í hvert skipti sem maður stígur í fótinn kemur álag á hælinn sem getur verið allt að því tuttuguföld líkamsþyngdin. Þetta álag dempast af fitupúða sem er undir hælbeininu og áðurnefndri sinabreiðu. Við langvarandi mikið eða rangt álag á fótinn geta orðið skemmdir á sinabreiðunni og festingu hennar á hælbeinið. Þessar skemmdir geta verið á formi tognunar, smásprungna og að lokum beinmyndunar í sininni þar sem hún festist í hælbeinið.
Þarna getur myndast lítið beinhorn sem kallast hælspori. Einstaka sinnum finnst hælspori fyrir tilviljun án þess að hafa valdið óþægindum en oftast veldur hann óþægindum sem geta verið mjög mikil. Þessi óþægindi lagast í hvíld en þau eru vanalega mest á morgnana þegar farið er á fætur. Ef þrýst er undir hælinn er það mjög sárt.

Orsakir hælspora eru of mikið álag á fótinn og oftast er um að ræða miðaldra, of þunga einstaklinga eða þá sem stunda erfiðar íþróttir einstaka sinnum, t.d. um helgar. Það eykur einnig áhættuna ef ekki er hitað upp fyrir íþróttaæfingar.

Mestu máli skiptir að koma í veg fyrir að hælspori myndist strax og einkenni um óeðlilegt álag á fótinn gera vart við sig með þreytu og verkjum eftir áreynslu. Þá verður að minnka álagið og gera viðeigandi æfingar, einkum teygjuæfingar sem strekkja á kálfavöðvum og sinabreiðunni undir fætinum. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir að það er ekki hælsporinn sem slíkur sem veldur verkjunum heldur er hann afleiðing af langvarandi of miklu álagi á fótinn. Sjúkdómsgreining byggist á sjúkrasögu með lýsingu á verkjunum, skoðun á fætinum og röntgenmynd.

Þegar hælspori hefur myndast kann að virðast freistandi að fjarlægja hann með skurðaðgerð. Árangur slíkra aðgerða er slæmur og er reynt að forðast þær í lengstu lög. Í staðinn er ráðlegt að gera viðeigandi æfingar, nota heppilega skó og innlegg, taka bólgueyðandi lyf og stundum er sprautað bólgueyðandi barksterum í hælinn. Þetta ber venjulega einhvern og stundum góðan árangur.


Finnst ykkur skrítið að ég emji oft af sársauka og taki inn bólgueyðandi eins og mér sé borgað fyrir það?  Það sem ég á að gera núna, er að tala við Björgu sjúkraþjálfara og segja henni frá þessari sjúkdómsgreiningu og athuga hvort hún gæti gert eitthvað eða hvort þessar æfingar sem hún kenndi mér og ég geri, hafi átt að gera það og skilaði litlum sem engum árangri.  Ef svo er, þarf ég að tala við lækninn aftur og hún ætlar að vísa mér til Bæklunarsérfræðings.

Ok þyngdin virðist eiga sinn þátt í þessu, en ég er að vinna í því og ekki lagast fóturinn!

Kveðja,
Dóra

Niðurstöður...

20. febrúar 2007 klukkan 12:30
Ég ætlaði alltaf að vera búin að blogga síðan ég talaði við lækninn eftir blóðprufurnar hans Andra Þórs.  Yfir heildina litið þá lítur blóðið hans bara ágætlega út, hann er sæmilegur í járni sem þýðir að ég  verði að setja auka skammta af spergilkáli hjá honum :)  En honum finnst þetta svo gott þannig að það er ekki mikið mál en það er eitthvað hormón í skjaldkirtlinum sem er of hátt hjá honum og fer ég með hann aftur til læknis þann 5. mars og þá vill hann tékka á þessu aftur og ef þetta hefur verið eitthvað tilfallandi, þá þarf ekkert að gera en ef þetta er ennþá hátt verður að athuga það betur.

Það var ekkert komið út úr litningarprófinu en ég fæ að vita úr því 5. mars.  Svo ætla ég að fara að panta tíma fyrir hann hjá talmeinafræðingi.

Annars var ég að láta taka röntgen af hælunum mínum, vonandi kemur eitthvað út úr þessu því ég er að rústa maganum mínum með íbúfen og voltaren neyslu - Berglind bað mig vinsamlegast um að passa mig þar sem hana langar ekkert að fá mig upp á deildina til sín með blæðandi magasár.  Ef ekkert kemur úr myndunum á ég að fara til bæklunarsérfræðings.

Núna er Jóhanna Arna lasin, með kvef ofan í pípunum.  Hóstar eins og stórreykingarmanneskja og svaf lítið í nótt.  Ég fékk hana á endanum til að sofna í ferðarúminu og þá varð ég að sofa í sófanum og bakið mitt er ekkert voðalega happy með það :)  Svo eignast ég Spiderman á morgun, Andri Þór ætlar að vera Spiderman í leikskólanum :)  Hefði verið íþróttarálfurinn hefði Hagkaup sýnt sóma sinn í að selja þá búninga ennþá...pifffff...hefði ég vitað þetta þá hefði ég beðið annað hvort Tryggva að kaupa svoleiðis út í Ameríku eða talað við Hjördísi og athugað hvort Latibær hefði átt eitt stk einhvers staðar, hún vinnur jú einu sinni í LATABÆ!

Jæja þarf að sinna Jóhönnu Örnu

Kv. Dóra

IKEA er nýji besti vinur minn :)

13. febrúar 2007 klukkan 10:26
Ég er búin að vera að betrumbæta hér heima við og hef eytt ágætum stundum í hinu feykistóra IKEA.  Stóra markmiðið mitt þessa dagana í þeim efnum er að reyna að skipuleggja barnaherbergið - reyna að fá sem mest rými því mig langar að fara að færa frökenina yfir. 

En ég er búin að setja nýja hillu inná bað, endaði að kaupa hillu í stað skáps, kemur bara vel út.  Keypti rosalega flott áklæði á sófan....nú eigum við þrjú til skiptana, ekki slæmt með tvö börn.  Keypti ódýra en góða skóhillu fram í gang og inn í herbergi.  Búið að setja upp snaga inn í herbergið okkar svo fötin endi ekki á gólfi eða ofan á skiptiborðinu....alveg þoli það ekki.  Andri Þór fékk borð og tvo stóla frá ömmu Jóhönnu um daginn og það er alveg óunnninn viðurinn í því þannig að ég get málað það ef ég vil.  Svo fengu þau sitthvort svona "hengidót" til að setja dótið þeirra í, ætla að losa mig við bókaskápana og setja þetta upp í staðin, þarf bara að setja króka í loftið.  Vil sem sagt reyna að taka sem mest "af" gólfinu.  Ætla að kaupa í næsta mánuði TROFAST hillu með skúffum inn í herbergið. Hentar betur en þessir bókaskápar.  Auk þess er ég búin að láta taka niður rimlagardínurnar inni í barnaherbergi og komnar eru myrkvarúllugardínur komnar í staðin.  Í næsta mánuði ætla ég svo að kaupa rosalega sætar gardínustangir og gardínur í stíl sem ég sá í rúmfatalagernum, sérstaklega fyrir barnaherbergi.  Stefni að því hægt og bítandi að skipta út rimlunum fyrir svona rúllugardínur, bæði flottara og minna ryk sem fylgir þeim.

Annars er það að frétta að Andri Þór fór í 3.5 árs skoðun í gær.  Hann er auðvitað laaaaaangt yfir meðaltali í hæð og þyngd, mældist 19.8 kg og 105.5 cm - greinilegt að hann sækir þetta ekki til mín - vantar bara 54.5 cm upp á að nái mér í hæð!  Ég fékk beiðni fyrir talþjálfun utan leikskóla fyrir hann, en við fáum það niðugreitt frá TR.  Hann fór síðan í blóðprufu í morgun þar sem á að tékka á öllu, meðal annars á að gera litningarpróf og athuga hvort hann sé með Brothættan X litning.  Hann stóð sig eins og hetja, ég sat með hann í fanginu og hann horfði á hjúkkuna stinga (ég reyndi samt að fá hann til að horfa annað) en hann kippist aðeins við en ekkert meir....fannst þetta lítið mál.  Ég á svo sterkan strák og hann er alltaf að koma mér á óvart þessi elska.  Hann grætur sjaldan ef hann meiðir sig, en ef hann er að gera eitthvað og það gengur illa eða gengur ekki upp grætur hann eins og stungin grís!  Hann slasaðist í leikskólanum um daginn á putta, bólgnaði rosalega upp en sem betur fer slapp við brot en hann er ennþá svolítið bólginn og kvartar pínu.

Svo ætla ég að vera með saumaklúbb í kvöld, reyndar komast bara Berglind og Hjördís en þetta verður fínt.  Gunnar er reyndar að fara á sjó í dag kl 16 og fer ég með farangurinn hans til Grindavíkur í dag og kveð kallinn :)  Hann kemur aftur á mánudagsmorgun.  En mamma ætlar að passa fyrir mig í kvöld svo ég komist til einkaþjálfarans og líka á fimmtudaginn.  En ég ætla að vera búin að gera allt klárt fyrir stelpurnar áður en ég fer upp í Perlu og börnin verða vonandi sofnuð :)  Já og svona á milli þess sem ég er ekki að passa að Jóhanna Arna klifri ekki eða fikti ekki verð ég að fara í Bónus að versla og læra :)  Stór og mikill dagur framundan sem sagt.

En fyrir ykkur sem vitið ekki hvað Brothættur X er, þá gerði ég smá rannsóknavinnu í gær á netinu því þessi læknir sem ég varð að fara til í gær í þessa skoðun, er ekkert mikið fyrir að útskýra hlutina - kannski ekki skrítið að ég fari helst ekki með börnin mín til hans.

En þetta er það sem ég komst að:

Helstu líkamlegu einkenni hjá drengjum með Fragile X eru; langt og mjótt andlit og haka, lágsett, stór og útstæð eyru, flatir fætur, lág vöðvaspenna, ofhreyfanleiki í vöðvum og stækkun á eistum á kynþroskaaldri. Einnig kemur fram þroskhömlun og væg greindarskerðing sem lýsir sér í náms-, hegðunar- og málörðugleikum og einkennum á einhverfurófinu. Mörg af einkennunum koma ekki í ljós fyrr en þau eldast.

Hjá stúlkum byrtast sömu einkenni Fragile X og hjá strákum. Þroskaskerðing og væg greindarskerðing er einnig hjá stúlkum en einkennin eru yfirleitt mildari en hjá drengjum og tengjast frekar kvíða og þunglyndi. Einnig er meiri hætta á að stúlkur með Fragile X séu ófrjóar og meiri hætta er á fósturláti hjá þeim.

Fólk með Fragile X er líklegra en aðrir að vera með þroskahömlun og mörg einkennin eru svipuð einkennum einhverfu en ólíkt einhverfum börnum þá koma einnig fram ýmis útlisteinkenni sem tengjast litningagallanum. Tuttugu prósent þeirra sem eru með Fragile X greinast með einhverfu en allir einstaklingarnir greinast með einhver einkenni á einhverfurófinu

Andleg Einkenni
Gagntækar þroskaraskanir og raskanir á einhverfurófi eru einn og sami þátturinn. Ekki er hægt að greina einhverfu með líffræðilegum hætti eins og t.d. blóðprufu. Einhverfa er þrisvar til fjórum sinnum algengari hjá drengjum en stúlkum. Skilgreining á einhverfu skiptist í þrjá þætti sem eru félagslegt samspil, einkenni í máli og tjáskiptum og sérkennileg áráttukennd hegðun. Þetta getur komið fram í að þau eiga erfitt með að mynda augnsamband, að mynda tilfinningatengsl og sýna umhverfinu lítinn áhuga. En þegar átt er við áráttukennda hegðun getur hún komið fram í hreyfingum, svo sem að rugga sér fram og aftur og í þrálátum bendingum. Einstaklingur sem hefur náð valdi á tali, getur átt það til að tala endalaust um sama hlutinn og getur fengið yfirþyrmandi áhuga t.d. á strætókerfinu eða um ákveðnar þvottavélategundir.

Einkennin geta verið mismunandi en hafa oft sameiginleg grunnatriði. Þegar öll atriðin þrjú koma fram við greiningu er talað um gagntækar þroskaraskanir en ef eitt til tvennt af þremur atriðum kemur fram þá er talað um ódæmigerða einhverfu eða einhverfuröskun


Ég tek það fram að við höldum ekki að hann sé einhverfur eða neitt slíkt.  En ég held að læknirinn hafi sett þetta inn af því að Andri Þór er með mjög litla einbeitingu sem getur lýst sér sem athyglisbrest, en ég er bara að giska því læknirinn sagði ekkert við mig. Ég vissi bara að hann ætti að fara í blóðrannsókn og láta tékka almennt á blóðinu en komst að því  þegar ég var komin heim og opnaði umslagið með beiðninni að hann fyrirskipaði líka litningarannsókn.  Niðurstöður koma á föstudaginn.  En ég er ekkert að missa mig úr áhyggjum sko, ef það kemur eitthvað í ljós sem þarf að athuga betur þá bara gerum við það og tökum einn hlut fyrir í einu.

Næst á dagskrá er að panta fyrir hann tíma hjá talmeinafræðingi talþjálfun, þá fær hann þessa tvo tíma sem hann fær í leikskólanum ásamt því að við förum með til Hafnarfjarðar eða Kópavogs til talmeinarfæðings.

Jæja nú verð ég að fara að læra, Jóhanna Arna er komin upp í rúm með Nenna sinn :)

Kveðja,
Dóra

Leynibloggið

08. febrúar 2007 klukkan 18:27

Æi ég orðin leið á að halda þessu leyndu!  Gunnar náði hvort eð er að klúðra þessu gagnvart Dodda og Karen um daginn þegar þau spurðu okkur hvað við ætluðum að gera í sumar og stað þess að segja ekkert sérstakt eða bara þegja sagði hann "það er leyndó!!"  Common.....þau vissu upp á hár hvað væri að fara að gerast og nú er búið að segja foreldrum frá þannig ég ætla bara að kjafta hérna, já sem sagt þann 12. ágúst, á 32 ára afmælisdaginn minn munum við Gunnar gifta okkur.  Er búin að setja leynilbloggið í link hérna til hliðar.

Annars er ég að byrja hjá einkaþjalfara núna á eftir klukkan 19 - bæði kvíð og hlakka til :)

Læt þetta duga að sinni

Kveðja,
Dóra

Allar einkunnir komnar í hús...

20. janúar 2007 klukkan 07:01

Jæja looooksins eru allar einkunnir komnar í hús og LÍN ætti að borga bankanum mínum í næstu viku :)  Alla vega svona liggja þær:
Siðfræði 9.5
Myndmennt 9
Á mörkum skólastiga 8.5
Tölvugrafík 8.5
Málþroski og málörvun 6.3 (reyndar rúnað niður í 6)

Er bara sátt :)  Ég er búin að vera í skólanum alla þessa viku, fysta staðarlotan sem sagt búin núna og voðalega er ég alltaf fegin þegar þessar blessuðu staðarlotur eru búnar!  En þetta vormisseri leggst alveg ágætlega í mig, nema ég vildi að þær sem sæju um vettvangsnámið gætu drullast til að hafa eitthvað samband við okkur.  Átti að mæta í tíma í síðustu viku, sem ég gerði nema kennarinn var veik og það heyrist ekkert frá henni.

Annars er ég búin að vera í smá stríði við tölvuna mína, þessa sem er bara 7 mánaða!  Er búin að kaupa nýtt skjákort, kaupa nýjan aflgjafa, búin að hreinsa hana.  Tók síðan þá ákvörðun áðan að um mánaðarmótin verður fjárfest í einu stykki vinnsluminni, ætla að bæta við 1 gb...það er 1 gb nú þegar.

En núna nenni ég ekki að sitja hérna lengur, er búin að taka tvær síður í gegn á barnalandi í kvöld, klára þriðju sem ég byrjaði á í fyrradag og fleiri sem bíða en núna ætla ég að fara að sofa!!

Kveðja,
Dóra

Smá tími á blogg...

14. janúar 2007 klukkan 08:07

Gleðilegt nýtt ár allir saman!  Jæja þar sem ég er hálf andvaka ákvað ég bara að pikka smá blogg inn...kominn tími til ekki satt?  Finnst ágætt að hafa bloggin svona kaflaskipt....

Skólinn
Hann byrjar á mánudaginn hjá mér, þá fer ég í staðarlotu númer 1 á önninni.  Ég er búin að fá einkunnir úr öllum fögum nema myndmenntinni.  Veit ekki alveg hvað er í gagni þar en kennarinn var búin að segjast ætla að skila þeim af sér 12. janúar en það var síðasti dagurinn hennar til að skila innan þeirra tímamarka sem KHÍ setur kennurum eftir jólapróf, 4 vikur.  Finnst þetta bara skítt af henni að gera þetta, því ég fæ ekki námslánin greidd út fyrr en allar einkunnir eru komnar í hús.  En alla vega, þær einkunnir sem komnar eru raðast svona niður:
Siðfræði - 9.5 => Efst í bekknum, sú eina með þessa fínu einkunn Hlæjandi  Ég hef ALDREI verið með efstu einkunn! 

Tölvugrafík - 8.5 => Kennarinn gaf tvær einkunnir í þessum áfanga, 8 og 8.5.  Gaman að vera með þeim efstu hérna líka Hlæjandi

Á mörkum skólastiga 8.5 => Var með þeim efstu líka hérna, reyndar veit ég ekki hvernig meirihlutanum gekk, því við vorum 5 sem þurftum að taka próf í Könnunaraðferðinni og meðan hinar gerðu verkefni í Vettvangsnáminu en þær eru ekki búnar að fá sínar einkunnir, enda skiluðu þær verkefninu 18. des og 4 vikur eru liðnar núna á mánudaginn.

Málþroski og Málörvun - 6.3 =>  Er bara glöð með þessa einkunn því mér gekk mjög illa að læra fyrir þetta próf, mikið lesefni og við fengum engar leiðbeiningar eða gátlista hvað við ættum í raun að leggja áherslu á.  Einkunnirnar hér voru á þessu bili, frá 5 til 7.

Þessa önn verð ég í eftirfarandi fögum:
Stefnur og Starf => 4 einingar
Vettvangsnám I => 5 einingar (5 vikur á vettvangi)
Menning og Samfélag => 2 einingar
Tónmennt II => 2 einingar
Heimurinn af vörum barna => 2 einingar

Þetta gera alls 15 einingar sem er 100% nám, en á eiginlega bara að vera í 75% námi.  Ég ákvað að bæta við Heimurinn af barna því ég veit að sá áfangi er mjög léttur og ég vildi geta náð upp í 100% námslán.  Reyndar ætla ég að taka mig aðeins á sálfræðinni.  Ætla að láta bankann borga mér samt sem áður eins og ég væri í 75% námi.  Þá hef ég möguleika að hætta í einum áfanga ef mér finnst þetta of mikið með vettvangsnáminu.  En ef ég næ öllu (sem ég stefni að sjálfsögðu að gera) mun ég eiga slatta af pening eftir af námslánunum í Maí. 


Andri Þór
Æi þessi elska...hann á pínu erfitt núna.  Hann er svo afbrýðissamur og í svo mikilli vörn gagnvart systur sinni.  En við vonum að þetta gangi bara sem hraðast yfir.  Svo þegar ég var með Jóhönnu í 10 mánaða skoðuninni, talaði ég við lækninn um Andra Þór.  Hann er nefnilega farin að missa þvag, fer samt á klósett eftir á og pissar heilmikið.  Ég vildi vita hvort "sleftöflurnar" gætu verið að valda þessu en hann sagði að svo væri nú ekki.  En hann sagðist halda eftir lýsingar á hægðum hans frá mér, að hann væri stíflaður og ristillinn væri farinn að þrýsta á blöðruna.  En við byrjuðum á að fara með þvag í ræktun til að útiloka sýkingu, sem við gerðum...þvagið var hreint.  Þá fór pabbi hans með hann í röntgenmyndatöku til að taka mynd af ristlinum og ég talaði svo við lækninn á fimmtudaginn var og hann hafði rétt fyrir sér.  Drengurinn er stútfullur af skít!  Skemmtilega orðað hjá mér, ég veit...en svona er þetta bara!  Æi ég hálfvorkenni honum.  Hann er nú kominn á langtímaprógram til að reyna að hreinsa út.  Læknirinn ætlar svo að láta taka aftur mynd af honum eftir 2 til 3 mánuði og ef hann lagast ekkert að ráði, verða önnur úrræði og lyf notuð.

Jóhanna Arna
Tönn númer þrjú er komin!  Það er vinstri augntönnin í efri góm.  Hún er svo mikil dúlla og er alltaf að standa upp, farin að labba aðeins með.  Hún fór í 10 mánaða skoðun þann 2. janúar og var hún þá 75.7 cm og 9.890 grömm.  Svona til samanburðar þá var Andri Þór 79 cm og 11.530 grömm 10 mánaða Hlæjandi  Sem er hálffyndið því Andri Þór hefur aldrei verið feitur, bara þungt í honum pundið.  Hún er mjög ákveðin og jafnvel pínu dós....guð sé þetta alveg fyrir mér...hana og Andra Þór á háa C'inu....Annars er hún bara búin að vera mjög frísk og kát. 

Ég spurði Gunnar í dag hvort það væri ekki bara hægt að hraðspóla framyfir gelgjuskeiðið hjá þeim.  Reyndar er ég alveg viss um að þau fara á það skeið saman...það gerðu alla vega frændi minn og frænka og er 2.5 ár á milli þeirra (3 skólaár) eins og Andri Þór og Jóhanna Arna.   Mamma þeirra sagði mér að þetta hafi verið mjög erfitt tímabil en það var fljótt að ganga yfir.  Ég passaði þessar elskur mikið sem barn og ég MAN ENNÞÁ eftir rifrildunum!  Þau voru eins og hundur og köttur en svo bara allt í einu var það bara búið og orðnir bestu vinir.  Þau eru reyndar komin yfir tvítugt í dag, sem mér finnst mjög skrítið því ég er bara 25 ára ennþá....

Ég er búin að umturna íbúðinni...búin að breyta Hlæjandi  Mæli eindregið með því, það er mjög hollt!  Við erum búin að búa hérna síðan 1.10.05 og mér fannst kominn timi á breytingu og þetta er bara miklu betra! 

Jæja ég held að ég sé orðin nógu syfjuð til að skríða undir sængina núna...

Blogga meira seinna! 

Kveðja,
Dóra

Nú er maður fínn :)

29. desember 2006 klukkan 23:18

Ég komst í klippingu og strípur í morgun, orðin knallstutt með ljóst hár...alveg æði!  Fór svo og splæsti á mig nýjum maskara og glossi Brosandi.  Annars voru jólin hérna alveg yndisleg, borðuðum kl 18 á sunnudaginn og hef verið að borða kalkún síðan.  Börnin voru að drukkna í pökkum og hér hefur Latibær verið í aðalhlutverki síðan þá, annað hvort í DVD eða geislaspilarnum sem Andri Þór fékk frá ömmu sinni og afa.  Er farin að kunna þetta utan af.

Fengum bílinn okkar í gær, fengum 50% afslátt af viðgerðinni og nú var borgað 26.000 en þetta er vonandi búið núna. Andri Þór er búinn að vera heima eftir jólin og ég er búin að sjá hann þurfti ekkert að fara í leikskólann....hann flutti leikskólann hingað heim.  Því hann er með söngstundir og sögustundir, hópastarf, hádegismat, kaffi, hvíld og frjálsan leik hérna heima - gaman að fylgjast með honum í þykjustuleiknum.


Jæja skrifa meira seinna...


Dóra

Fyrsta einkunnin komin :)

23. desember 2006 klukkan 16:03
Ég tók handahlaup hérna í gærkvöldi!  Ég  ákvað að tékk hvort einhver kennari hafi sýnt sóma sinn í að skila einkunnum inn fyrir jólin og viti menn...Siðfræðin var komin inn...opnaði síðuna með lokuð augun og hnút í magananum, svona eins og ég er venjulega þegar ég athuga einkunnir.  En ég fékk 9.5 og var sú eina með þá einkunn!  Er ekkert smá ánægð með mig núna, flestir voru 7, einn var með 9 og einn með 8 og nokkrir 6 og 5.

Hef aldrei verið hæst í bekk áður Brosandi - nú er bara að vona að hinar komi fljótlega.  Vona að ég hafi bara náð öllu svo ég fái námslánin mín Brosandi

Annars er það að frétta að það bandbrjálað veður hérna og í nótt hélt ég á tímabili að grillið myndi bara fjúka.  Við getum ekki geymt það inni, erum ekki með neina geymslu til þess. 

Raunarsaga bílsins
Gunnar fór með bílinn inn í Heklu í Rvík í gær.  Ég lenti í því leiðinlega að bíllinn bara stoppaði og var dauður á gatnamótum um daginn þegar ég var að fara að sækja Andra Þór í leikskólann.  Í SNAAARKLIKKUÐU veðri!  Um tíma hélt ég að bíllinn myndi bara fjúka.  Sem betur fer var ég ekki með Jóhönnu Örnu í bílnum, mamma og Alexandra voru að passa hana heima.  En ég varð að hringja í hana mamma og biðja hana um að gefa mér start, hún kom (Alexandra var að passa þá) en við gátum ekki leitt startkaplana á milli því húddið hefði bara fokið af bílnum.  Þannig að hún fór að sækja Andra Þór, fór með hann heim og ég beið í bílnum og vonaðist að hann myndi hrökkva í gang.  Ég beið í klukkustund í bílnum og það var EINN sem stoppaði og hjálpaði mér (fyrir utan mömmu) - hjálpsemin alveg að drepa suma hérna.  Alla vega þessi yndislegi maður reyndi að gefa mér start, en bíllinn bara tók ekki við sér.  Þannig að mamma kom aftur og við ýttum bílnum í bílastæðið hjá Íþróttarakademíunni (var á þeim gatnamótum) en stoppaði einhver og hjálpaði okkur að ýta?  Nei nei auðvitað ekki!  Gunnar kom honum í gang um kvöldið, fékk start hjá einhverjum manni sem stoppaði en kaplarnir þurftu að vera tengdir í meira en mínútu áður en bíllinn tók við sér.

Eins og hefur komið fram hérna áður, þá höfum við eytt pening í tvær viðgerðir og þessar viðgerðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri, bíllinn er bara alveg eins.  Þannig að Gunnar skrifaði tölvupóst til framkvæmdarstjóra Heklu og lýsti hvernig verkstæðið hérna er búið að standa sig (illa), hvaða svör við höfum fengið við fyrirspurnum okkar.

Hérna er smá brot úr tölvupóstinum sem Gunnar sendi:

"
Hvað er að er ekki mitt að meta, það er hins vegar þinna manna að meta.  Hugsanlega hafa þeir eitthvað farið á mis við það hvernig ég lýsti vandanum.  Hugsanlega hafa þeir verið of fljótir að draga ályktanir um bilunina.  Kannski hafa þeir þurft frekari upplýsingar en ekki spurt um þær.  Ég veit ekki hvað er að, en ég hélt að venjan væri að þjónustufyrirtæki kæmu til móts við viðskiptavininn þegar hann hefur tvisvar kvartað undan því að hafa ekki fengið það sem hann óskaði eftir og borgaði fyrir.  Þegar ég spurði Sigtrygg í Keflavík að því hvort þessi lýsing benti til þess að eitthvað hættulegt væri í gangi sem þarfnaðist viðgerðar strax eða gæti skemmt meira út frá sér, taldi hann ekki ástæðu til þess og spurði engra frekari spurninga og ráðlagði mér ekkert.  Þetta finnst mér hreinlega ekki nógu gott.  Þegar ég spurði hann svo að því hvers vegna sérþjálfaðir menn með bestu hugsanlegustu aðstæður kláruðu verkin ekki betur, svaraði hann “Stundum þarf bara meira til”.  Hver á að borga þann kostnað?  Á ég að láta bilanagreina bílinn í þriðja skiptið?  Á ég að fara með sömu söguna í þriðja skiptið?  Á ég að láta einhvern annan sækja strákinn minn á leikskóla því bílinn minn er í “viðgerð”?"

Við fengum svo svar í gær, þótt maðurinn sé úti í USA.  Bjuggumst ekki við að fá svar fyrr en eftir áramót þegar hann kæmi aftur til vinnu.  Og honum þótti þessi þjónusta sem okkur var veitt, alls ekki ásættanleg en þar sem þetta er umboð og þeir eiga það fyrirtæki ekki geta þeir ekki gert neitt til að taka hendur fram fyrir þeim en það sem hann bauð okkur var að koma með bílinn til þeirra í Rvk og þeir myndu gera allt til að fá bílinn í lag.  Verkstjórinn á verkstæðinu hringdi svo í mig í gær, sagðist vilja fá bílinn strax en ætlaði að athuga hvort það væri ekki til bíll sem við gætum fengið að láni á meðan.  Hann sagði að biðin á verkstæðið væri einn mánuður en þeir ætluðu að troða honum að á miðvikudaginn.  Þannig að Gunnar fór með bílinn og fékk annan í staðin.  En það sem mér finnst best er að þegar verkstjórinn var búin að lesa lýsinguna okkar á biluninni og þegar ég sagði honum nánar frá þessu, sagði hann við mig í síma "mér finnst eins og hann sé ekki að hlaða nóg".  Þarna fékk ég bara í gegnum síma hugsanlega bilun, en ekki "ja stundum er það ekki nóg"  Eða "ja sko ég get ekki sagt neitt í gegnum síma, það verður að tengja bílinn við tölvu".

Gunnar spurði þennan mann hvernig honum fyndist þessi þjónusta sem við fengum í Kef vera og hann sagði að væri ekki í hans að meta það en bætti svo við að umboðsmenn Heklu bæri skylda að senda starfsfólk á verkstæði á námskeið til þeirra til þess að bæta sig í viðgerðum á þeim bíltegundum sem Hekla selur en þeir hafi bara aldrei mætt á slíkt.  Hvað segir það manni um verkstæði????  Þannig að ég verð bara að segja að ég mæli alls ekki með að fólk fari með bílana sína þangað.  Framvegis förum við með bílinn á tvo staði til viðgerðar....til pabba og ef hann getur ekki gert við bilunina förum við með bílinn til Heklu í Rvík.  Ég er bara mjög ánægð með viðbrögð Heklumanna í rvík.  Og fyndið að segja frá því að þegar Gunnar kom upp í Heklu í gær, lagði hann í stæði við verkstæðið en ætlaði að laga hann aðeins í stæðinu en var búin að drepa á bílnum.  Viti menn....púffff...rafmagnslaus...dauður.... ágætt kannski að þetta gerðist akkurat við verkstæðið.  Nýr geymir sem við borguðum 12 þúsund kall fyrir hjá Heklu í Keflavík...tómur....alveg er þetta mergjað!

Reyndar endaði framkvæmdastjóri Heklu póstinn sinn á að þakka Gunnari fyrir þessar upplýsingar, að fá svona upplýsingar hjálpi þeim að vita hvernig umboðsmenn þeirra eru að standa sig og að að það gefi þeim vísbendingu um hvernig sé tekið á móti viðskiptavinum Heklu.  Nú er spurning hvort þetta eigi eftir að draga einhver dilk á eftir sér fyrir umboðsmanninn hér...

Við vitum ekkert hver muni borga þessa viðgerð, hvort það verði við eða hvort þetta verði í boði Heklu en okkur er í raun alveg sama.  Við viljum bara fá bílinn í lag.

Jólatré
Ég og Andri Þór ætlum að skreyta jólatréið í dag.  Yfirleitt hef ég gert það þegar allir eru sofnaðir en ég ákvað núna af því Þorláksmessa er á laugardegi að gera þetta með Andra Þór.  Veit að hann á eftir að hafa svo gaman af því :)  Svo í kvöld ætla ég að ryksuga og skúra hérna, ætla að skipta á öllum rúmum í dag og klára að þrífa svefnherbergið.  Ég hafði Andra Þór heima í gær, tók ekki sénsinn á bílnum Brosandi  Þannig að það sem ég ætlaði að gera í gær, að klára að þrífa og slíkt fór á bíð.  Einhvern vegin tekst þessum yndislegu gullmolum mínum að leggja allt í rúst hérna heima...tók þvílíkt vel til um daginn og það er ekki að sjá að það hafi verið gert í dag Hlæjandi  En svona er þetta bara að hafa tvö börn, skítastuðullinn hjá manni hækkar við hvert barn.

Jóhanna Arna
Er farin að standa upp!  Voða montin og hún er að reyna að fatta hvernig maður hreyfir sig þegar maður stendur við eitthvað....Ef þessi dama á ekki eftir að vera fljót að læra að labba þá veit ekki hvað ég heiti!  Reyndar stóð Andri Þór upp fyrr en hún, hann var 8.5 mánaða og gekk alveg meðfram frá 11 mánaða en hann bara treysti sér ekki að  fara að ganga fyrr en 17 mánaða en það er auðvitað bara útaf vöðvaspennunni.  Hún ákvað að reyna taka forskot á sæluna í gær, náði fyrir algera tilviljun sinn pakka í gær (frá okkur sko) og klóraði aðeins í pappírinn og náði að gera pínu gat :)  Úfff....ég þarf að finna út hvernig ég get varið tré og pakka fyrir þessum litlu puttum.  Tréið SKAL FARA Á GÓLFIÐ....ekki upp á borð eða í loft.

Andri Þór og jólasveinarnir 13
Hann er ekki alveg að fatta hvað þetta er góður díll...að setja skó út í glugga, vera þægur og fá eitthvað skemmtilegt í skóinn.  Ég þarf alltaf að minna hann á að skoða skóinn!   Hann hefur einu sinni fengið kartöflu frá sveina gamla en fattaði ekki að það væri ekki gott...þannig að Sveinki ákvað að vera ekkert að gera slíkt.  Reyndar segir hann núna alltaf þegar hann er spurður hvað hann fékk, að hann hafi fengið "blableblö" eða kartöflu þótt það hafi verið eitthvað miklu skemmtilegra!  Þessi jólin eru jólasveinarnir að missa sig í Latabæjardóti....hann er búinn að fá einar sokkabuxur og eitt sokkapar og ég hef góðar heimilidir fyrir því að Kertasníkir ætli að gefa honum Latibær/Glanni glæpur í Latabæ DVD í skóinn....Glottandi.  Foreldranir munu síðan gefa prinsinum Íþróttaálfurinn og fótboltabullan í jólagjöf ásamt matarstelli, pottum og bakaravörum úr IKEA.  Tær snilld!  Drengurinn mun eiga flottari potta en foreldrarnir!!  Ég ætlaði að kaupa eitthvað plast matarstell í Hagkaup en fór í IKEA til að atthuga með ramam og sá matarstell fyrir börn sem er bara eins og alvöru nema minna og það var ódýrara en hitt! Það kostaði 995 krónur og matastellið í Hagkaup var í kringum 1999 krónur.  í þessu sem er 4 manna stell, eru matardiskar, súpudiskar, hnífapör og glös!  Svo keypti ég sett með pottum og pönnum í IKEA og bökunarmót og áhöld...allt þetta kostaði um 3.000 krónur!  Við erum að gefa honum þetta því hann er alltaf að elda og gefa manni mat hérna heima og í leikskólanum og þetta hefur hjálpað honum með félagsfærnina og málið.  Pabbi varð pínu hneykslaður þegar mamma sagði honum hvað við gæfum honum...hahaha....

Jæja ætli það sé ekki best að hætta að skrifa núna...vonandi nenntuð þið að lesa þetta allt!

Bestu kveðjur,
Dóra

Verð að monta mig!

19. desember 2006 klukkan 05:49
Þetta er nú reyndar ekki átaksbloggið, en ég bara verð að segja frá þessu líka hérna Brosandi  En ég vann heilsuátakið í Tjarnarseli og vann andlistbað...næææs....Missti á þessum 12 vikum 8.4 kg, 9.3 kg af hreinni fitu fóru og 25.5 cm fór!  Já vitiði ég er bara nokkuð ánægð með mig!  Er farin að komast í föt sem ég hef þurft að geyma inn i skáp ansi lengi.  Ákvað svo í dag að prófa að fara í pollagallann minn, en hann var þröngur þegar ég keypti hann.  En núna er hann bara fínn á mér, jakkinn ekkert óþægilega þröngur Brosandi

RYKSUGAN Á FULLU, ÉTUR ALLA DRULLU TRALALALALA
SKÚRA SKrÚBBA BÓNA RÍFA 'F ÖLLUM SKÓNA..TRALALALALALA

Já ég er búin að vera í hreingerningarstuði í dag, dvínaði aðeins nefnilega eftir að ég kláraði prófin :)  En þetta lítur bara nokkuð vel út hjá mér.  Kláraðii flestar jólagjafir í gær, jólagjöfin fyrir foreldarna og ömmurnar og nokkra aðra er í prentun :)  Ætla að skreppa út í bókarbúð á morgun og kaupa jólalímmiða og karton til að búa til jólamerkimiðana Brosandi.  Og vonandi verða jólakortin komin aftur í Hljómval...trúiði því að þau kláruðust í dag?!

Er að gera innkauparlista, verð með kalkún á sunnudaginn og tengdó sendi Gunnar heim í dag með það sem á að vera í fyllingunni....mmm...hún er svo góð...sko fyllingin!  Reyndar á ég alveg yndislega tengdamömmu og líka tengdapabba Glottandi

Jæja ég er farin að lúlla mér :)  Er veeerulega þreytt!
Dóra

Prófíll

  • Nafn: Dóra
  • Staður: Keflavík
  • Atvinna: Leikskólakennari
  • Hjúskaparstaða: Gift

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

SIMS 2 tenglarnir mínir

Klukkan