Aint it true

Ţú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleiđ ţinni, en ţađ eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í ţínu hjarta.

Netföng og ţess háttar

doram@islandia.is er msn addressan mín

theodoram@simnet.is er netfangiđ mitt

Innskráningar kubbur

Lífiđ í Keflavík...

10. október 2006 klukkan 17:23
gengur sinn vanagang!  Gunnar fer í sitt fyrsta próf í dag og ég er búin að vera að læra og læra.  Svakalega mikill lestur núna.  En ég hef haft þann háttinn á að læra á daginn og hreyfa mig á kvöldin.  Átakið gengur vel, bendi þeim sem vilja sjá fréttir af því að skoða það blogg.  Nenni ekki að blogga um það líka hérna.  Annars gaf ég sjálfri mér smá verðlaun um daginn...keypti mér einn tölvuleik sem var á útsölu í BT og hann er eiginlega hættulega skemmtilegur Glottandi The Sims - Deluxe Edition.  Ég er svo eftirá, þessi leikur var mjög vinsæll fyrir nokkrum árum síðan, núna er komin nýrri útgáfa.

Annars er voðalega lítið að frétta héðan og núna verð ég að fara að lesa!

Kveðja,
Dóra

Hvađa Prúđuleikari ertu?

04. október 2006 klukkan 00:46
You Are Kermit
Hi, ho! Lovable and friendly, you get along well with everyone you know.
You're a big thinker, and sometimes you over think life's problems.
Don't worry - everyone know's it's not easy being green.
Just remember, time's fun when you're having flies!
The Muppet Personality Test

Kv. Dóra

Mitt írska nafn...

04. október 2006 klukkan 00:37
Your Irish Name Is...
Aislin McKenna
What's your Irish Name?

Ég og ţvottavélin erum "like this ((())))"

04. október 2006 klukkan 00:35

Þvottavélin og þurrkarinn hafa gengið nánast non stop alla helgina, þar sem Andri Þór er í klósettþjálfun.  Hann fær bara bleyju þegar hann fer að sofa, annars er hann laus við hana.  Og það hafa verið svolítið mikið um "slys" og skipti hann örugglega 8 sinnum um nærbuxur og buxur í gær og fór fjórum sinnum í bað!  Já hann kúkaði einu sinni í sig - næææs eða þannig.  En það er ekkert gefist upp, hann SKAL hætta á bleyju!  Hann er í umbunarkerfi hér og á leikskólanum, fær límmiða í hvert skipti sem hann pissar í klósettið.  Honum gengur ofsalega vel í talkennslunni hjá henni Önnu Lydíu en 1. nóvember fer hann í málþroskapróf hjá Bryndísi Guðmundsdóttur (kona bæjarstjórans og hún er talmeinafræðingur og eitthvað meira).  Svo er hann byrjaður í sjúkraþjálfun, fór í einn tíma í gær og á að fara í næsta á morgun.  Ég er búin að mála rúmið hans Andra Þórs og árangurinn má sjá í albúmi á heimasíðunni hans.

Af henni Jóhönnu Örnu er það að frétta að hún er orðin veik aftur, rauk upp í 39.6 stiga hita í gærkvöldi og er búin að vera með 38 til 39.4 í dag.  Ég er líka pínu slöpp en engan hita með....hugsa að við séum með svipaða pest.

Jæja ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja meira...byrjaði að skrifa þetta fyrir einum og hálfum klukkutíma..."kvöldmatur og koma börnum í rúmið tíminn" kom í millitíðinni.

Takk fyrir hvatninguna Brosandi

Kveðja,
Dóra

Brjáluđ vinna ađ blogga á ţremur stöđum!

02. október 2006 klukkan 15:52
Þetta er bara orðin brjáluð vinna hjá mér að blogga á þremur bloggum Brosandi.  Ég er búin að vera nammilaus í meira en viku núna, fyrir utan á laugardaginn þá fékk ég mér smá kökur og slíkt þar sem bróðir minn var 35 ára og haldið var óvænt afmælisboð heima hjá mömmu og pabba.  Og skv. vigtinni hérna heima (já ég keypti baðvigt um daginn) þá er ég búin að missa 4.4 kg.  Ég er með nokkur markmið, sem leiða að hinu risastóra markmiði en það er að komast næst kjörþyngd og mögulegt er.  Fyrsta markmiðið mitt er að komast í tveggja stafa tölu....já ég er núna í þriggja stafa tölu og er ekkert hrædd við að viðurkenna það.  Ég er þó alla vega að taka á mínum málum!  Ég fór í mælingu hjá Lyfju um daginn, þar sem mældur var blóðþrýstingur, blóðsykur og kólestról og þetta kom bara fínt út.  Blóðþrýstingurinn var 133/81, blóðsykurinn var 6.6 og kólestrólið var 4.12.  Sykurinn var svona hár því ég var nýbúin að borða hafragraut með berjum og eina skiptið sem mældist sykur í þvaginu hjá mér þegar ég gekk með Jóhönnu Örnu var eftir að ég borðaði þennan graut.  Gaurinn sem mældi okkur, var eiginlega mjög hissa að ég hafði svona lágt kólestról.  Ég var með minna kólestról en aðstoðarmatráðurinn sem er frekar grönn og í ágætu formi.

Núna ætla ég að vera ofsalega dugleg og hreinskilin...ég ætla að bæta í linkana hérna til hliðar átaksblogginu mínu.  Ég vil biðja þá sem lesa það að lesa það með það í huga að þótt ég sé svona svaaaakalega þung, þá er ég að vinna í mínum málum og vigtin er á niðurleið.  Það sem ég þarf á að halda núna er bara hvatning og hrós...já ég er eins og litlu börnin - reyndar þurfum við öll hvatningu og hrós á að halda.  Á þessu bloggi eru allar tölulegar staðreyndir um mig.  Það má alveg commenta á það en haldið samt leiðinlegum commentum í lágmarki.

Kveðja,
Dóra

Dugnađur í gangi

27. september 2006 klukkan 22:17

Ég lét loksins verða að því að fara að pússa niður rúmið hans Andra Þórs.  Er búin að vera að pússa það með juðara síðan í morgun, frekar leiðinlegt þar sem sandpappírinn var alltaf að rifna!  En núna er ég að fara með rúmið í bílskúrinn hans pabba og ætla að fá að grunna það og mála það þar.  Ég þarf að klára að pússa það hjá honum þar sem ég held að hann eigi minni juðara svo ég komist í kverkarnar á höfuð- og fótagaflinum.  Æi það er hægt að sjá hvernig rúmið er í albúminu, ef þið skiljið mig ekki.  Er búin að komast að þeirri niðurstöðu að það verði hvítt með glans í.

Svo gerði ég nú eitt áðan sem ég hélt ég myndi aldrei gera...keypti baðvigt!  Það er ágætt að eiga svona, nú get ég líka vigtað Andra Þór og séð hvað drengurinn er stór.

Annars eru fréttir af honum í vefdagbókinni á síðunni hans, endilega kíkið þangað og sjáið hvað er í gangi og ég minni á GESTABÓKINA ÞAR!

Jæja ég er hætt í bili!

Kveðja,
Dóra

Andri Ţór er svooo duglegur!

26. september 2006 klukkan 17:40
Já það er sko engar ýkjur!  Við erum byrjuð með umbunarkerfi fyrir Andra Þór og bleyjustandið á honum.  Í hvert skipti sem hann pissar eða kúkar í klósettið fær hann límmiða.  Þetta gekk ágætlega hjá okkur um helgina og svo sendi ég hann með fjóra umganga af fötum í leikskólann í gær en það er líka umbunarkerfi þar í gangi.  Ég bjóst nú við að fá alla vega einn pissu umgang heim í gær en nei vinurinn pissaði ekki né kúkaði í sig og fór fimm sinnum á klósettið á leikskólanum!  Þannig að bunkinn af fötunum er ennþá á leikskólanum, spurning hvernig verður með daginn í dag en þetta lofar alla vega góðu.  Hann er ennþá að fá bleyju á nóttinni, enda fær hann Nenna sinn ennþá þegar hann fer að sofa en af því túttann á honum er sú sama og Jóhanna Arna fær, nær hann eiginlega aldrei að klára hann og ég er farin að taka hann frá honum þegar hann er sofnaður.

Ég hlakka svo til þegar ég þarf bara að kaupa bleyjur fyrir eitt barn Brosandi

Kveðja,
Dóra

Bíó?? Nei LEIKHÚS

24. september 2006 klukkan 16:35

Mig minnir að við höfum farið í bíó síðast þegar Andri Þór var bara nokkra vikna, sem sagt þrjú ár síðan.  Jújú við erum alltaf á leiðininni sko...Gunnar á meira að segja frímiða í bíó, þannig að peningurinn er ekki vandamálið...við bara komum okkur ekki af stað.  Þetta er svo flókið, nú þurfum við pössun fyrir tvö börn (alltaf að reyna að finna afsakanir)

Annars hringdi mamma í mig í gærkvöldi og spurði hvort við hefðum áhuga á að fara í leikhús 20. október á leikritið "Viltu finna milljón?"  Og ég svaraði því játandi, það væri mjög gaman og niðurstaðan er sú að við erum að fara í leikhús 20. október í boði mömmu Brosandi Og hún passar bæði börnin, spurning hvort þetta sé ráð til þess að fá börnin til sín.  En ég er sátt - fór síðast í leikhús fyrir fjórum árum minnir mig - Sex í sveit :)  Reyndar sá ég það leikrit þrisvar sinnum - já það var svo fyndið og skemmtilegt Brosandi

Jæja Jóhanna Arna er að kalla á mig :)

Kveðja,
Dóra

Ást...

21. september 2006 klukkan 05:09

Sólin brennir nóttina
og nóttin slökkvir dag
þú ert athvarf mitt fyrir
og eftir sólarlag
þú ert yndi mitt áður
og eftir að dagur rís
svölun í sumarsins eldi
og sólbragð af vetrarins ís

svali á sumardögum
og sólskin um vetrarnótt
þögn í seiðandi salli
og söngur ef allt er hljótt
söngur í þöglum skógum
og þögn í borganna dyn
þú gafst mér jörðina og grasið
og Guð á himnum að vild.

Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð,
til að styrkja mig
Ég fann ei hvað lífið var fagurt
fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins,
er lærði ég að unna þér.
Ást mín fær ekki fölnað,
fyrr en með sjálfri mér.

Aldir og andartök hrynja
með undursamlegum nið
það er ekkert í heiminum öllum
nema eilífðin, Guð og við.

Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð,
til að styrkja mig
Ég fann ei hvað lífið var fagurt
fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins,
er lærði ég að unna þér.
Ást mín fær ekki fölnað,
fyrr en með sjálfri mér.

Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð,
til að styrkja mig
Ég fann ei hvað lífið var fagurt
fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins,
er lærði ég að unna þér.
Ást mín fær ekki fölnað,
fyrr en með sjálfri mér.

Ég er með þetta lag á síðunum hjá börnunum.  Ég dýrka þetta lag og ef ég gifti mig einhvern tíman ætla ég að vera mjög væmin og klisjuleg því þetta verður eitt af lögunum sem verður flutt og ef ég fæ að ráða einhverju verður það fröken Ragnheiður Gröndal sem mun flytja það!

Ég heyrði það flutt í brúðkaupi í maí hjá frænku hans Gunnars.  Sópransöngkona sem vinnur í Fríkirkjunni í Rvk flutti það og ég verð að viðurkenna að mér fannst það ekki flott í hennar flutningi.  Ekki misskilja mig, konan söng rosalega vel en þetta varð alltof óperulegt fyrir minn smekk.

Ég er í einhverju rómantísku og væmnu skapi núna þannig að ég er með þetta lag á repeat :)
Annars er annað lag með henni Ragnheiði sem er miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana en það er Bubba lagið "Með þér". . . alveg brill!

Svo er þessi texti svo fallegur og lýsir alveg þessari ást sem er á milli tveggja manneskja sem elska hvort annað.  Gunnar var um daginn að rifja upp hvernig þetta var á milli okkar þegar við vorum að kynnast og ég er svo svaaaaaakalega rómantísk að ég var alltaf að senda honum eða gefa honum eitthvað bara til að minna hann á að ég elskaði hann.  Til dæmis gaf ég honum eina rós fyrir hverja viku sem við vorum búin að vera saman....þegar við vorum búin að vera saman í 6 mánuði (24 vikur - 24 rósir) og hafði ég mikið fyrir því að finna þetta margar rósir á góðu verði!  Svo var ég skrifa honum lítil og falleg skilaboð og þess háttar.

Í dag er líf okkar komið í fastar skorður, komin með tvö börn, búin að skuldbinda sig hjá bönkum og Íbúðalánasjóði næstu 40 árin.  Lífið gengur sinn vanagang og þetta er orðið þægilegt.  En langt frá því að vera leiðinlegt.  Það er ekkert leiðinlegt að sofna hliðina á aðilanum sem þú elskar og vakna við hlið hans líka.  Ég hef fengið martraðir, vaknað grátandi því í draumnum missti ég draumaprinsinn...en svo þegar lít til vinstri, hrýtur hann svo glæsilega við hlið mér og ég get sofnað með bros á vör Glottandi

Annars vil ég óska Nonna og Írisi innilega til hamingju litla fallega prinsinn sem þau eignuðust þann 18. september síðastliðinn.  Fyrir ykkur sem vitið ekki, þá er Nonni vinur hans Gunnars.  En þeir voru miklir félagar í Grindavík hér á árum áður Brosandi

Jæja ég er hætt að röfla um ást og þess háttar í bili.  En endilega kveikið á hátölurnum þegar þið farið inn á síður barnanna...þetta er svo fallegt lag og fallegur texti.  Það getur ENGINN þrætt fyrir það!

Kveðja!
Dóra

Var ađ setja inn nýjar myndir

19. september 2006 klukkan 21:00

Ég var að setja inn myndir sem ég tók af herberginu hans Andra Þórs :)  Endilega skoðið og njótið!

Prófíll

  • Nafn: Dóra
  • Stađur: Keflavík
  • Atvinna: Leikskólakennari
  • Hjúskaparstađa: Gift

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

SIMS 2 tenglarnir mínir

Klukkan