Aint it true

Ţú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleiđ ţinni, en ţađ eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í ţínu hjarta.

Netföng og ţess háttar

doram@islandia.is er msn addressan mín

theodoram@simnet.is er netfangiđ mitt

Innskráningar kubbur

Ný eldavél og ofn!

30. júlí 2006 klukkan 20:29

Já ég gleymdi alveg að segja frá nýjasta heimilistækinu!  Í gær kom hingað nýr Electrolux blástursofn og keramikhelluborðið við ofninn kemur vonandi sem fyrst.  Á Baldursgötunni var ég með eldgamla eldavél og þegar við keyptum þessa íbúð sá ég fyrir mér þvílíkan bakstur og matarboð þar sem ég hélt að ég ætti svo fína eldavél....YEAH RIGHT!  Hugsa að hin eldavélin sé bara miklu betri.  Einn takkinn á ofninum er bilaður, allt hitastig er afmáð og búið að rugla í kvarðanum, þannig að ég veit í raun ekkert hvaða hitastig ég er að nota....nota heppnina og slumpa á þetta.  Er til dæmis með lambalæri í ofninum núna sem ég vona að verði í lagi með.  Helluborðið er skárra en þó ekki...stærsta hellan á það til að slökkva bara á sér og fara í nokkra klst verkfall!

En jæja það er rýmingarsala í Húsasmiðjunni á Smáratorgi og pabbi var þar í gær og sá þennan fína ofn (allt er betra en þetta drasl sem ég er með núna) á heilar 15 þúsund krónur....átti að kosta 30 þúsund.  Ég er að vona að þetta verði komið í gagnið fyrir afmælið hans Andra Þórs - annars þarf ég að fara til Grindavíkur eftir skólann og baka.  Ekki séns að ég baki í þessum ofni sem er núna.

Nú vil ég bara þessa rigningu bak og burt svo ég geti haldið áfram að safna brúnku og hengt út þvott!

Kveðja úr rigningunni!
Dóra

Magni í Rockstar Supernova

30. júlí 2006 klukkan 17:42
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2370  Satisfaction - gott hjá honum

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2344  My generation - frábært

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2353  Plush - geggjað

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2371 aukaflutningurinn

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2369  Heroes eftir David Bowie - vá hvað þetta er frábært hjá honum!

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2393 Clocks eftir Coldplay - frábært hjá honum

Mér finnst hann frábær söngvari og held ég mikið upp á Á móti sól en þarna sýnir hann hvað hann er í raun og veru frábær söngvari!  Vonandi kemst hann bara sem lengst, en ég held að Supernova eigi hann bara ekki skilið sem söngvara....þessir uppgjafatónlistarmenn.

Kv. Dóra

Svakalegt ţegar tölvur bila!

30. júlí 2006 klukkan 05:38

Já tölvan mín lenti í viðgerð í nokkrar klukkustundir á föstudaginn!  Á fimmtudaginn sett ég í sakleysi mínu tvo tölvuleiki sem ég á hérna síðan í gamla dag Brosandi og fór að leika mér, slökkti svo bara á gripnum og fór að sofa.  Daginn eftir vildi þessi elska bara ekkert kveikja á stýrikerfinu og ég fór með hana upp í Tölvulista þar sem hún var löguð samdægurs og ég var bara rukkuð fyrir hálftíma sem var 3.250 krónur.  En vá á meðan hún var biluð, vitiði ég vissi ekkert hvernig ég átti að haga mér né hvað ég átti að gera af mér!  Nema jú ég þreif íbúðina!  Hvað gerir maður þegar tveir mikilvægir hlutir bila með stuttu millibili?  Sem sagt þvottavél og tölva.  En alla vega þá fara þessir tveir leikir EKKI aftur í tölvuna því þeir rugluðu skjákortið alveg!

En þetta sýnir manni hvað maður er virkilega háður þessum hlut - þetta er eiginlega hálf óhugnalegt!  Svo var þetta alveg týpískt...hún bilaði akkurat þegar ég var að fara að byrja á einni heimasíðu á barnalandi fyrir eina.  Og já ég fékk smá sjokk þegar þetta gerðist því ég er með svo mikið af gögnum í tengslum við heimasíðugerðina á tölvunni að það yrði svakalegt ef ég missti það vegna kjánaskaps í mér - þannig að á mánudaginn ætla ég að kaupa geisladiska og gera afrit af öllu!
 

Jæja ég ætla að fara að kúra :)  Bendi ykkur á að kíkja á síður barna minna - í albúmin en þar eru nýjar myndir.  Og ef þið eruð ekki með lykilorðin en þekkið okkur - þá bara að senda mér póst á theodoram@simnet.is eða kíkja á mig á msn doram@islandia.is

Kveðjur frá Keflavík!
Dóra

Ţvottur

28. júlí 2006 klukkan 16:37

Við erum búin að vera þvottavélalaus núna í viku.  Vélin kom til Keflavíkur á þriðjudaginn en sá sem flutti hana fyrir okkur hjá Landflutningum var svo mikill snillingur að hann skemmdi vélina, lokið á henni.  Þannig að Gunnar fór að meta þetta og við þurftum ekki að borga flutninginn til Keflavíkur og ekki heldur fyrir viðgerðina.  En við áttum að fá hana á miðvikudaginn, þar sem einhver rafvirki hérna í bænum sem konan hjá Landflutningum þekkir ætlaði að laga þetta.  Svo kom í ljós að lokið er ekki til á landinu þannig að hann gerði bráðabirgðaviðgerð þangað til lokið kemur og við áttum að fá þvottvélina þá í gær.  Klukkan að verða sjö í gærkvöldi hringdi Gunnar í þetta fyrirtæki og náði samband á einhvern verkstjóra og þá voru bara allir farnir heim og þvottavélin ennþá hjá þeim - þvílíkt klúður en þessi verkstjóri kom svo með vélin til okkar.  Ég voða glöð, ætlaði að fara að byrja á þessu þvottafjalli sem hefur verið að safnast hérna.  Nei þá er einhver pakkning farin í slöngunni fyrir inntakið þannig að það lekur bara vatn.  Nú er Gunnar að fara að redda þessari pakkningu...ég vonast til að geta farið að þvo þvott eftir hádegi!

Það er ekki mjög þægilegt að vera þvottavélalaus með tvö börn.  Að vísu eiga börnin slatta af fötum þannig að þau eru ekki fatalaus en ég er orðin uppiskroppa með buxur!  Ég þvoði hluta af þvottinum hjá mömmu en þar sem ég hélt að ég myndi fá þvottavélina mína á þriðjudaginn var,  var ég ekkert að fara til Grindavíkur með þvott.

Andri Þór er hjá tengdó núna, hann var þar í nótt.  Skrítið að vera bara með eitt barn.  Við þurftum enga pössun, þau langaði bara að fá hann lánaðann yfir nótt.  Við sækjum hann í dag, en eftir klukkan 14 því ég fer í klippingu og strípur í dag Brosandi  Hlakka ekkert smá til. 

Jæja ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja meir...Gunnar ruglaði mig alveg á einhverri málfræðikennslu.  Já það kostar það að spyrja hann að einni málfræðispurningu, fæ ég svaka kennslu því sem ég spurði ekki um líka Brosandi

Kveðja,
Dóra

Nýar áherslur nćstu daga.

26. júlí 2006 klukkan 03:36

Jæja, þá er brjálæðið að mestu búið hjá mér!  Eflaust eru margir sem vita ekki um hvaða brjálæði er að ræða en ég hef þurft að læra langt fram á kvöld alla sjö daga vikunnar til þess að skila af mér mikilvægum verkefnum fyrir skólann en þessi verkefni eru nauðsynleg forsenda þess að ég fái hreinlega próftökurétt.  Það hefur ekki verið í mínum anda að vinna á síðustu stundu en það hef ég einfaldlega þurft að gera sökum þess hve hin elskulega dóttir okkar hún Jóhanna Arna var lengi veik. 

Ég mun halda áfram að læra næstu vikur en á breyttri forsendu.  Núna líður að því að ég geti lært þá hluti sem ég þurfti að læra hroðvirknislega eða sleppa sökum tímaskorts.  Ég mun nota meiri tíma í líkamsrækt og samveru með fjölskyldunni minni.  Með öðrum orðum ég er kominn á það stig að námið er æðislega skemmtilegt en það er þreytandi að vinna undir tímapressu og þurfa að ofgera náminu á kostnað fjölskyldu, líkamsræktar, félagslegra tengsla og vinnu.

Ég mun heimsækja nokkra togara einhverja af næstu vikum og landa upp úr þeim nokkrum tugum þúsunda króna auk þess sem ég hef tekið að mér að aðstoða unga konu við að ná undirstöðuatriðum eðlisfræðinnar en þar er á ferðinni frábær námsmaður sem getur ekki sýnt þessu fagi áhuga sökum rangs hugarfars.

Haldiði að karlinn hafi ekki gert yogaæfingar í dag!  Þvílíkur léttir á líkama og sál eftir mjög stirða vöðva, litla hreyfingu, áhyggjur og miklar setur.

Að sjálfsögðu er toppurinn á þessu öllu saman að sonur okar skeyt sjálfur í klósett um daginn og   
Dóttir okkar hefur einnig verið að gera það gott með því að velta sér á hliðina á kraftmikinn hátt. 



Ég verð að viðurkenna að ég hef verið latur bloggari en ég nú sé ég að ég get notið þess við rétt tilefnin og þegar tími og aðstæður leyfa það.

Kveðja,
Gunnar Björn.

SKILABOĐ TIL GUNNARS

25. júlí 2006 klukkan 03:40
GUNNAR VILTU FARA AÐ LEGGJA EITTHVAÐ TIL MÁLANNA HÉRNA!  ÉG ER BÚIN AÐ BREYTA HAUSNUM Á BLOGGINU OG ALLT!  ÉG SKORA ÞVÍ Á ÞIG AÐ BYRJA AÐ BLOGGA HÉRNA!

ÞÍN HEITTELSKAÐA!!

OG JÁ ÉG GLEYMDI AÐ TAKA CAPS LOCKIÐ AF OG ÉG NENNI EKKI AÐ SKRIFA ÞETTA ALLT UPP Á NÝTT!

LOVE YA!

Forvitnin drap köttinn...

25. júlí 2006 klukkan 03:35
Fólk er alveg að deyja úr forvitni yfir leyndóinu mínu Brosandi  Fyndið hvað það þarf lítið til Glottandi.  Annars hef ég ekkert meira um þetta leyndó að segja, þetta getur verið gifting, þetta getur verið utanlandsferð, þetta getur verið barneignir.....eða NEI ÞETTA GETUR EKKI VERIÐ BARNEIGNIR!!  Þið megið vera forvitin mín vegna Brosandi

Annars er ég að upplifa svolítið núna sem ég gerði ekki þegar ég var í fæðingarorlofinu með Andra Þór.  Ég sakna vinnunnar!  Sem hlýtur að vera gott.  En ég byrja ekki að vinna fyrr en í maí á næsta ári.  Ég fer í vettvangsnám í mars/apríl og svo sumarfrí sem ég á inni og síðan vinna.  Ég fór að tala við leikskólastjórann og aðstoðarleikskólastjórann og sagði að ég óskaði eftir að vera föst inná einni deild þegar ég kem aftur, en ég var afleysing inn á öllum deildum, þó mest á elstu deild.  Ég er búin að fá nóg af því og þær sögðu að ég myndi að sjálfsögðu vera föst á einni deild þegar ég kem aftur, búin með afleysingarpakkann.  En ég verð líka búin með 3 af 4 árum á Kennó.

Þvottavélin bilaði um daginn og við sendum hana til Reykjavíkur á fimmtudaginn og ég hef síðan þá verið að fara með þvott til mömmu og pabba og þvo þar.  En ég fékk gleðisímtal í dag...ÞVOTTAVÉLIN ER KOMIN Í LAG OG KEMUR HEIM Á MORGUN!  Jibbbbbíííííí - fyndið hvað einfaldir og hversdagslegir hlutir geta glatt mann Brosandi

Jæja nú ætla ég að setjast í sófann og horfa á CSI Brosandi

See ya'll

Dóra

Nýr bloggari vćntanlegur...

23. júlí 2006 klukkan 04:47
Ég hef alltaf látið bloggið heita Vefsvæði Dóru og Gunnars, en ég hef verið sú eina sem hefur bloggað eitthvað.  En nú fer að verða breyting á.  Hann Gunnar ætlar að henda hérna inn einu og einu bloggi Brosandi Bara að láta vita sko!

Annars hefur gula fyrirbærið verið hérna í nokkra daga sem er ágætt.  Nuddpotturinn er kominn í gagnið hjá mömmu og pabba...bara snilld!  Ég fór í hann í dag ásamt börnum mínum og svo aftur eftir kvöldmatinn með Gunnari.  Við höfum þurft að vera svolítið í Grindavík síðustu 2 daga, þar sem þvottavélin okkar bilaði á fimmtudaginn!  Ekkert voðalega gott að vera með bilaða þvottavél og tvö ung börn þannig að mamma hefur verið að hjálpa mér og þvo fyrir mig.  Ég hengi það svo út hérna heima.

Elsa var að heimta leyndarmálið mitt en það verður því miður að vera leyndarmál lengur því Gunnar leyfir mér ekki að segja frá því - ég er að segja það...ÉG ER KÚGUÐ! Glottandi  Svo er líka pínu púki á vinstri öxlinni núna...

Jæja ég ætla að láta þetta duga

Kveðja úr Keflavík
Dóra

Smá stel...

19. júlí 2006 klukkan 05:06
Var að sjá þetta á einni bloggsíðu, ég bara varð að gera Copy/paste hingað!

"Ríkisstarfsmenn eru margir hverjir óánægðir með nýtt netfangakerfi hjá ríkinu.  Það er víst þannig að notaðir eru 9 stafir, svo @ merkið og nafn viðeigandi stofnunnar.  Stafirnir 9 eru þrír fyrstu úr fornafni starfsmanns, svo þrír fyrstu úr föðurnafni/eftirnafni og svo þrír fyrstu stafirnir úr starfsheiti.

Heyrst hefur að Rúnar Karlsson, sérfræðingur sé hættur."


Bara snilld!

Er gula fyrirbćriđ ađ koma?

19. júlí 2006 klukkan 04:51

Já loksins samkvæmt síðustu veðurspám!!  Annars förum við til Gests á morgun með hana Jóhönnu Örnu, á afmælisdaginn hans Gunnars - drengurinn að verða 32 ára gamall.  Sem þýðir það að ég er að verða 31 árs Óákveðinn.  Get ég ekki bara alltaf fengið að vera þrítug?  Segi eins og Joey í Friends "why God why?! Why are you doing this to us?"  Annars er ég ekkert að leggjast inn á elliheimili - finnst þetta bara algjör óþarfi að eldast! 

En snúum okkur nú að gula fyrirbærinu....Hún er væntanleg þessi elska og þar með er ég farin með börnin til Grindavíkur til að liggja í sólbaði á pallinum hans pabba Glottandi.  Nuddpotturinn er kominn á pallinn, en ennþá ótengdur, þannig að það er þá bara busl laugin sem blívar (er ég að verða of bjartsýn um gott veður?)  Jæja það er alla vega spá 1 metrum á sek. í vindi og það á að vera léttskýjað. 

Jæja mig langar að segja margt margt meira en ég má ekki segja það sem ég vil segja - ég er kúguð af Gunnari Glottandi   Já hann heldur því alltaf fram að ég kúgi hann en það er bara ekki satt!!

Jæja best að hætta áður en ég fer að segja eitthvað meira...ætla að blogga á leyniblogginu mínu núna...jáhá ég á sko leyniblogg bara fyrir mig!!  Eruð þið forvitin?  GOTT! nanananabúbú ég á leyndó Brosandi

Nei annars gæti ég alveg verið að bulla í ykkur bara "for the fun of it!"

Æi ok það er pínu púki á öxlinni minni Brosandi  Ég ræð bara ekki við hann núna!

Kveðja frá púkanum á hægri öxlinni hennar Dóru Glottandi

Skemmtilega bloggiđ...

17. júlí 2006 klukkan 05:52
Ég ákvað að blogga eitthvað skemmtilegt núna, eftir síðasta blogg Glottandi.  Við erum nýkomin heim úr sumarbústaðnum, að vísu var Gunnar bara um helgina og aðfaranótt föstudags, hann þurfti að vinna þessi elska.  Það var bara fínt í sveitinni, að vísu var Andri Þór ekki eins mikið úti og ég hélt að hann myndi vera.  En hann kom á óvart oft í þessari ferð.  Það er eins og hann hafði bara ákveðið að taka út ákveðinn þroska í þessari ferð.  Honum tókst að klifra upp í efri kojuna, eflaust eftir að hafa spáð mikið í hvernig hann ætti að fara að því og eftir það þorði hann að klifra í leiktækjunum á rólóinum þarna Brosandi.

Jóhanna Arna er búin að uppgvötva röddina sína...hún lék á alls oddi þarna - öskraði og kjaftaði út í eitt, bara frábært Brosandi.  Við förum með hana á miðvikudaginn til Gests, gaman að vita hvað hún er orðin þung og löng.

Annars er bara voða lítið að frétta eins og er úr Keflavíkinni.  Ég fer á starfsmannafund í vinnunni á þriðjudaginn (já ég er í fæðingarorlofi sko)  Ég þarf að fara yfir allar breytingar sem ég hef gert á heimasíðunni og Inga Mæja (leikskólastjóri) bað mig að mæta ef ég gæti.  Og já það rættist úr veðrinu hérna í dag, gula fyrirbærið lét sjá sig!  Og þá hentist ég með þvott út á snúrur Brosandi  Þvílíkur munur að geta sleppt því að nota þurrkarann.  Ég hengi að vísu ekki út naríur og þurrkurnar sem við notum til að þrífa bossann á Jóhönnu Örnu - það fær heiðursess í þurrkaranum.  Ég fór með Jóhönnu Örnu og Andra Þór í svaka labbitúr í gær upp í Húsasmiðju, það var ágætt veður þegar við lögðum af stað en svo fór það bara versnandi og greyið Andri Þór var orðinn pínu þreyttur þegar við vorum ca hálfnuð en alla vega bað hann mig þá að halda á sér, en ég gat það auðvitað ekki þar sem ég var að keyra vagn á móti svaka vindi og ringinu en Andri Þór var vel klæddur þannig að honum var nú ekkert kalt.  En hann varð eftir upp í Húsasmiðju hjá pabba sínum og kom með honum heim.  Á meðan gekk ég frá Húsasmiðjunni niður í Lyfju til að ná í mjól fyrir Jóhönnu Örnu í þvílíkri rigningu og roki...sem var allt í lagi þangað til öll fötin mín voru farin að leka í gegn.  Þannig að það var ágætt að prinsinn fékk far í bíl heim.  En hann er svo duglegur og þvílíkur orkubolti að það ótrúlegt!  Ég er svaka stolt af litla prinsinum mínum og prinsessunni minni Brosandi.

Ég er orðin að því sem ég hélt að ég myndi aldrei nokkurn tíma verða...fullorðin manneskja sem á voða erfitt að tala ekki um börnin sín öllum stundum!

Jæja ég held að ég láti þetta duga núna.

Kveðja úr Keflavíkinni....
Dóra

Skólinn...

16. júlí 2006 klukkan 20:32

Já það er komin stundatafla fyrir haustmisserið, ég byrja þann 21. ágúst!  Finnst það alltof stutt þangað til.  Ég verð í eftirfarandi fögum:

Á mörkum skólastiga
Markmið: Að nemendur - fái innsýn í nám elstu barna leikskólans, - þekki aðferðir til að skipuleggja og leiða hópstarf með börnum, - öðlist skilning á því hvaða þýðingu flutningur á milli skólastiga hefur fyrir börn, foreldra og kennara, - kynnist leiðum sem stuðla að samfellu í námi barna á mótum skólastiga. Viðfangsefni: Námsforsendur og námstækifæri elstu barnanna í leikskólanum verða til umfjöllunar. Í því sambandi verður sjónum beint að þróun læsis, ritmálsörvun og leik barna með einingakubba m.a. með tilliti til sköpunar og stærðfræðilegrar hugsunar. Fjallað verður um flutning og samfellu milli skólastiga og um viðhorf foreldra, kennara og barna til leik- og grunnskóla. Hugmyndafræði og vinnuferli könnunaraðferðar (project approach) verður gerð skil. Vinnulag: Fyrirlestrar, verklegar æfingar og umræður á neti.  Námsmat er verkefni og próf (já próf...ég fer alla vega eitt próf núna...hrrrrollllur)

Myndmennt II
Efnisgjald er 2000 kr. Markmið: Að nemendur - kynnist ýmsum möguleikum leirmótunar tengi vinnu sína í leirmótun við vinnu með börnum í leikskóla kynnist möguleikum pappírsgerðar og pappírsmótunar - sýni sjálfstæð vinnubrögð og læri að þróa hugmyndir sínar, kynnist samþættingu við önnur fög - tengi verklega vinnu fræðilegri umfjöllun. Viðfangsefni: - leirmótun, - pappírsvinna, pappírsmótun grímugerð - verkefni í tengslum við vettvang. Vinnulag í fjarnámi: Fyrirlestrar og verkleg vinna í staðlotu. Á fjarnámstíma vinna nemendur heimaverkefni og verkefni í vettvangsnámi.Unnið er með sameiginlegt viðfangsefni í tónmennt II og myndmennt II sem nemandi velur í upphafi annar. Umræður fara fram á WebCt.

Sóknarskylda er í námskeiðið. Sameiginleg ferilmappa með tónmennt II metin til 80% einkunnar. Skriflegt verkefni í tengslum verklegan hluta myndmenntar metið til 20% einkunnar.

Skil ekki alveg hvernig myndmennt II og tónmennt II ætlar að vinna saman þar sem tónmennt II er ekki fyrr en á vorönn Brosandi  Og núna ætlar mín sko að hamstra efni því við erum að borga jafnmikið og staðanemar í efniskostnað og þeir geta alltaf komið og unnið vinnuna sína í skólanum.

Málþroski og Málörvun
Markmið: Að nemendur - kynnist undirstöðuatriðum í máltöku barna og þekki þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á máltöku og málþroska barna, - geri sér grein fyrir mikilvægi málörvunar í starfi leikskólakennara og barna í leikskóla og kynnist fjölbreyttum aðferðum þar að lútandi, - viti hvað seinkaður málþroski og málhömlun er, - viti um aðrar tjáningaleiðir en talmál, - þekki hugtakið tvítyngi og mikilvægi móðurmáls fyrir tvítyngd börn. Viðfangsefni: Kenningar fræðimanna um máltöku og málþroska barna, lýsing á ferli máltökunnar, kynntar verða rannsóknir á barnamáli og fjallað um helstu breytingar og framfarir í málþroska barna á leikskólaaldri, kynning á málhömlun og frávikum í málþroska, kynning á öðrum tjáningarleiðum en talmáli, tvítyngi, mikilvægi móðurmáls fyrir sjálfsmynd barnsins og hlutverk leikskólakennara í því sambandi og fjallað verður um hvernig efla má málskilning og málnotkun barna. Vinnulag í staðnámi: Fyrirlestrar, málstofa og umræður. Vinnulag í fjarnámi: Kennslubréf, umræður í WebCt og verkefni.

Skrift - valfag sem ég varð að bæta við vegna þess að mig vantaði einingar til að vera lánshæf hjá lín.

Markmið námskeiðsins er að nemendur verði færir að kenna skrift. Viðfangsefni: Nemandinn kynnist sögu leturs, uppruna, þróun og tengsl þess við menningu hvers tíma. Búum til breiðpenna og lærum að rita með honum ítalskt letur. Læsileiki skriftar. Hvað gerir eitt letur betra en annað? Hvernig eru einstaka stafamyndanir, hvað eiginleikum er letrið gætt ? Þessum spurningum verður reynt að svara. Kennslufræði skriftar tekin fyrir. Hvað ferli fer í gang þegar börn byrja að draga til stafs? Hver er geta barna til að skrifa við upphaf skólagöngu. Vinnulag: Fyrirlestrar, umræður, sýnikennsla, verklegar æfingar, lestur og verkefni.

Námsmat: Æfingar, verkefni og mætingarskylda.

Verður gaman að sjá hvernig skrift verður kennd í gegnum tölvu Brosandi


Siðfræði -
þetta er fag á 7. misseri (ég er að byrja 5. misseri) en þar sem ég tek ekki vettvangsnámin fyrr en á næsta ári varð ég að bæta við mig þessu fagi til að fá námslán.

Markmið: - Að nemendur verði hæfari til að greina og takast á við siðferðileg vandamál sem upp koma í starfi, taka þátt í rökræðu um siðferði, fjalla um gildi samfélagsins og miðlun þeirra. Viðfangsefni: - Umfjöllun um gildi og helstu hugtök siðfræðinnar, rökræða og lausn siðferðilegra vandamála, beiting siðfræðinnar á raunveruleg vandamál, fagmennska í ljósi siðfræðinnar, dæmi: Þagnarskylda, siðareglur. Vinnulag: - Fyrirlestrar, rökræður í smærri hópum, verkefni þar sem fengist er við siðferðileg vandamál.

Námsmat: Próf og verkefni - hrrrollllur eitt próf í viðbót Öskrandi

Eftir þessa önn verð ég búin með 53 einingar af 90.  Ég er nú þegar búin með 42 einingar.  En ég útskrifast með aðeins meira en 90 einingar þar sem ég tek aðeins meira í vali en ætlast er.

Jæja fannst ykkur þetta ekki vera athyglisvert blogg? Brosandi  Ég vil deila þjáningunni með öðrum....nei annars er þetta ekkert voðalega mikil þjáning en ég hlakka samt ofsalega mikið til þegar ég verð búin með þetta nám.

En ef einhver les þetta og á góðar glósur úr einhverjum af þessum fögum má sá hinn sami alveg hafa samband við mig Brosandi

:)

03. júlí 2006 klukkan 05:49

Ég á stundum í bölvuðum vandræðum að finna titla á þessi blogg mín...enda stundum á því að slökkva bara á öllu því ég finn ekki nógu skemmtilegan titil á bloggið - já ég veit ég er biluð stundum!
 
Alla vega þá náði ég að versla 1 stk bílstól í dag fyrir Andra Þór - 6 mánaða Graco stól á barnalandi - fékk hann á hálfvirði, sæki hann á morgun.  Er bara nokkuð glöð með þetta.  Britax stóllinn er eiginlega orðin of lítill fyrir hann og svo ætla ég að kaupa æðislegan Graco stól fyrir Jóhönnu Örnu, nýjan í haust.  Sá stóll er fyrir 0 til 25 kg, lúxus að þurfa ekki að skipa neitt út.  Enda er hann ekki sá ódýrasti Brosandi.

Nú fer að líða að sumarbústaðarferðinni, jeminn hvað ég hlakka til!  Andri Þór fer á leikskólann á morgun og svo frá og með þriðjudeginum er hann kominn í sumarfrí.  Ég held að hann eigi eftir að sakna þess að vera ekki á leikskólanum, hann er svo mikill útikall.  Tókum eftir því um daginn að hann var með bitsár á hægri öxlinni, Gunnar talaði við einn deildarstjórann á deildinni hans og hún sagði að það væri einn einstaklingur sem þær væru að kljást við vegna bita og þær ætluðu að fylgjast betur með þessu.  Maður skilur þetta alveg, þær geta auðvitað ekki verið alls staðar og séð allt.  En það góða við Andra Þór núna, er að hann er farinn að "klaga".  Ef einhver meiðir hann, fer hann og segir frá því.  Hann gerði það nefnilega aldrei þessi elska.

Hann byrjar í sjúkraþjálfun eftir sumarfrí og þá verð ég vonandi búin að fá bréfið frá ráðgjafateyminu hjá Reykjanesbæ.  Hann kom ekkert voðalega vel út úr smábarnaþroskalista um daginn.  Hann er eftirá í grófhreyfingum og tali, en það er talið stafa útaf lágu vöðvaspennunni sem hann greindist með þegar hann var 2 ára.  Við fórum með hann til taugasérfræðing barna, mjög færan læknir sem er nýkomin frá USA þar sem hún var í framhaldsnámi og sérhæfði sig í taugasjúkdómum barna.  Hún telur þó að þetta sé arfgengt hjá honum, sé ekki stafa vegna undirliggjandi taugasjúkdóms.  En hún vildi að hann færi í sjúkraþjálfun, hann fór í mat til sjúkraþjálfara fyrra haust og hann byrjar hjá henni núna í ágúst.  Svo fer hann að öllum líkindum til talmeinafræðings og fer í talþjálfun.  Og þegar það er komið af stað, ætlar Ýr (taugalæknirinn) að setja hann á lyf til að stöðva slefið.

En honum hefur farið rosalega mikið fram, bara frá því að ég svaraði þessum lista.  Hann er farinn að nota tveggja og þriggja orða setningar, hefur mjög mikinn skilning enda var það ekkert áhyggjuefni.  Hann er ekkert misþroska, bara þessi lága vöðvaspenna er líka í andlitinu á honum sem gerir það að verkum að hann slefar mjög mikið og talar mjög óskýrt.  Ef þið skoðið heimasíðuna hans, getið þið skoðað "Orðabók Andra Þórs"  Við köllum tungumálið hans "Andraísku" Brosandi  Og hermum oft eftir honum (án þess að hann heyri auðvitað) - við auðvitað elskum og dáum allt sem þessi drengur gerir, líka frekjuna þótt hún geti orðið yfirgengileg og þá er það bara STÓLLINN sem virkar eða uppeldiskerfi sem nefnist SOS.  Þið getið lesið aðeins um það hérna http://www.fel.hi.is/page/SOS%20namskeid 

Reykjanesbær býður öllum foreldrum barna á aldrinum 2 til 12 ára á svona námskeið þeim að kostnaðarlausu og við nýttum okkur það auðvitað og svo fæ ég þetta líka metið í vinnunni Brosandi

Af Jóhönnu Örnu er allt ágætt að frétta, hún hefur náð sér af barkabólgunni síðan um daginn og varð 4 mánaða í dag.  Hún fer næst til Gests barnalæknis þann 19. júlí, á afmælisdag föður síns Brosandi og svo á hún að fara í næstu bólusetningu 2. ágúst en ég var að fatta að þá verður læknir sem ég vil ekki að hún fari til, þannig að ég ætla að reyna fá tímanum breytt á morgun Brosandi  En þessi dama ákvað í fyrranótt að byrja daginn klukkan 4 en mamman hafði ekkert of mikinn húmor fyrir því og var ég í 2.5 klst að fá hana til að sofna aftur!  Enda svaf ég morgunin af mér, Gunnar var frammi með hana og Andra Þór.  Þannig að ég ætla að skríða undir sæng núna í þeirri von að hún sofi til alla vega 6 núna.

Góða nótt og takk fyrir að lesa þessa langloku Brosandi

Mig langar ađ monta mig!

01. júlí 2006 klukkan 05:19
Já mig langar að monta mig og þar sem ég á þetta blogg ætla ég barasta að monta mig Brosandi.  Verð bara að sýna hvað ég á falleg börn Glottandi






















Sumarprinsessan Brosandi


Prinsinn minn Brosandi



Systkinin saman - Jóhanna Arna ekki alveg að fíla þetta Brosandi



Bara varð að setja þessa inn - tók hana af þeim kl 5:35 - fannst þeir svo sætir svona Brosandi

Jæja ég hef lokið montinu mínu í bili!

Kveðja,
Dóra

Prófíll

  • Nafn: Dóra
  • Stađur: Keflavík
  • Atvinna: Leikskólakennari
  • Hjúskaparstađa: Gift

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

SIMS 2 tenglarnir mínir

Klukkan