Aint it true

Þú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleið þinni, en það eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í þínu hjarta.

Netföng og þess háttar

doram@islandia.is er msn addressan mín

theodoram@simnet.is er netfangið mitt

Innskráningar kubbur

Allar einkunnir komnar í hús...

20. janúar 2007 klukkan 07:01

Jæja looooksins eru allar einkunnir komnar í hús og LÍN ætti að borga bankanum mínum í næstu viku :)  Alla vega svona liggja þær:
Siðfræði 9.5
Myndmennt 9
Á mörkum skólastiga 8.5
Tölvugrafík 8.5
Málþroski og málörvun 6.3 (reyndar rúnað niður í 6)

Er bara sátt :)  Ég er búin að vera í skólanum alla þessa viku, fysta staðarlotan sem sagt búin núna og voðalega er ég alltaf fegin þegar þessar blessuðu staðarlotur eru búnar!  En þetta vormisseri leggst alveg ágætlega í mig, nema ég vildi að þær sem sæju um vettvangsnámið gætu drullast til að hafa eitthvað samband við okkur.  Átti að mæta í tíma í síðustu viku, sem ég gerði nema kennarinn var veik og það heyrist ekkert frá henni.

Annars er ég búin að vera í smá stríði við tölvuna mína, þessa sem er bara 7 mánaða!  Er búin að kaupa nýtt skjákort, kaupa nýjan aflgjafa, búin að hreinsa hana.  Tók síðan þá ákvörðun áðan að um mánaðarmótin verður fjárfest í einu stykki vinnsluminni, ætla að bæta við 1 gb...það er 1 gb nú þegar.

En núna nenni ég ekki að sitja hérna lengur, er búin að taka tvær síður í gegn á barnalandi í kvöld, klára þriðju sem ég byrjaði á í fyrradag og fleiri sem bíða en núna ætla ég að fara að sofa!!

Kveðja,
Dóra

Smá tími á blogg...

14. janúar 2007 klukkan 08:07

Gleðilegt nýtt ár allir saman!  Jæja þar sem ég er hálf andvaka ákvað ég bara að pikka smá blogg inn...kominn tími til ekki satt?  Finnst ágætt að hafa bloggin svona kaflaskipt....

Skólinn
Hann byrjar á mánudaginn hjá mér, þá fer ég í staðarlotu númer 1 á önninni.  Ég er búin að fá einkunnir úr öllum fögum nema myndmenntinni.  Veit ekki alveg hvað er í gagni þar en kennarinn var búin að segjast ætla að skila þeim af sér 12. janúar en það var síðasti dagurinn hennar til að skila innan þeirra tímamarka sem KHÍ setur kennurum eftir jólapróf, 4 vikur.  Finnst þetta bara skítt af henni að gera þetta, því ég fæ ekki námslánin greidd út fyrr en allar einkunnir eru komnar í hús.  En alla vega, þær einkunnir sem komnar eru raðast svona niður:
Siðfræði - 9.5 => Efst í bekknum, sú eina með þessa fínu einkunn Hlæjandi  Ég hef ALDREI verið með efstu einkunn! 

Tölvugrafík - 8.5 => Kennarinn gaf tvær einkunnir í þessum áfanga, 8 og 8.5.  Gaman að vera með þeim efstu hérna líka Hlæjandi

Á mörkum skólastiga 8.5 => Var með þeim efstu líka hérna, reyndar veit ég ekki hvernig meirihlutanum gekk, því við vorum 5 sem þurftum að taka próf í Könnunaraðferðinni og meðan hinar gerðu verkefni í Vettvangsnáminu en þær eru ekki búnar að fá sínar einkunnir, enda skiluðu þær verkefninu 18. des og 4 vikur eru liðnar núna á mánudaginn.

Málþroski og Málörvun - 6.3 =>  Er bara glöð með þessa einkunn því mér gekk mjög illa að læra fyrir þetta próf, mikið lesefni og við fengum engar leiðbeiningar eða gátlista hvað við ættum í raun að leggja áherslu á.  Einkunnirnar hér voru á þessu bili, frá 5 til 7.

Þessa önn verð ég í eftirfarandi fögum:
Stefnur og Starf => 4 einingar
Vettvangsnám I => 5 einingar (5 vikur á vettvangi)
Menning og Samfélag => 2 einingar
Tónmennt II => 2 einingar
Heimurinn af vörum barna => 2 einingar

Þetta gera alls 15 einingar sem er 100% nám, en á eiginlega bara að vera í 75% námi.  Ég ákvað að bæta við Heimurinn af barna því ég veit að sá áfangi er mjög léttur og ég vildi geta náð upp í 100% námslán.  Reyndar ætla ég að taka mig aðeins á sálfræðinni.  Ætla að láta bankann borga mér samt sem áður eins og ég væri í 75% námi.  Þá hef ég möguleika að hætta í einum áfanga ef mér finnst þetta of mikið með vettvangsnáminu.  En ef ég næ öllu (sem ég stefni að sjálfsögðu að gera) mun ég eiga slatta af pening eftir af námslánunum í Maí. 


Andri Þór
Æi þessi elska...hann á pínu erfitt núna.  Hann er svo afbrýðissamur og í svo mikilli vörn gagnvart systur sinni.  En við vonum að þetta gangi bara sem hraðast yfir.  Svo þegar ég var með Jóhönnu í 10 mánaða skoðuninni, talaði ég við lækninn um Andra Þór.  Hann er nefnilega farin að missa þvag, fer samt á klósett eftir á og pissar heilmikið.  Ég vildi vita hvort "sleftöflurnar" gætu verið að valda þessu en hann sagði að svo væri nú ekki.  En hann sagðist halda eftir lýsingar á hægðum hans frá mér, að hann væri stíflaður og ristillinn væri farinn að þrýsta á blöðruna.  En við byrjuðum á að fara með þvag í ræktun til að útiloka sýkingu, sem við gerðum...þvagið var hreint.  Þá fór pabbi hans með hann í röntgenmyndatöku til að taka mynd af ristlinum og ég talaði svo við lækninn á fimmtudaginn var og hann hafði rétt fyrir sér.  Drengurinn er stútfullur af skít!  Skemmtilega orðað hjá mér, ég veit...en svona er þetta bara!  Æi ég hálfvorkenni honum.  Hann er nú kominn á langtímaprógram til að reyna að hreinsa út.  Læknirinn ætlar svo að láta taka aftur mynd af honum eftir 2 til 3 mánuði og ef hann lagast ekkert að ráði, verða önnur úrræði og lyf notuð.

Jóhanna Arna
Tönn númer þrjú er komin!  Það er vinstri augntönnin í efri góm.  Hún er svo mikil dúlla og er alltaf að standa upp, farin að labba aðeins með.  Hún fór í 10 mánaða skoðun þann 2. janúar og var hún þá 75.7 cm og 9.890 grömm.  Svona til samanburðar þá var Andri Þór 79 cm og 11.530 grömm 10 mánaða Hlæjandi  Sem er hálffyndið því Andri Þór hefur aldrei verið feitur, bara þungt í honum pundið.  Hún er mjög ákveðin og jafnvel pínu dós....guð sé þetta alveg fyrir mér...hana og Andra Þór á háa C'inu....Annars er hún bara búin að vera mjög frísk og kát. 

Ég spurði Gunnar í dag hvort það væri ekki bara hægt að hraðspóla framyfir gelgjuskeiðið hjá þeim.  Reyndar er ég alveg viss um að þau fara á það skeið saman...það gerðu alla vega frændi minn og frænka og er 2.5 ár á milli þeirra (3 skólaár) eins og Andri Þór og Jóhanna Arna.   Mamma þeirra sagði mér að þetta hafi verið mjög erfitt tímabil en það var fljótt að ganga yfir.  Ég passaði þessar elskur mikið sem barn og ég MAN ENNÞÁ eftir rifrildunum!  Þau voru eins og hundur og köttur en svo bara allt í einu var það bara búið og orðnir bestu vinir.  Þau eru reyndar komin yfir tvítugt í dag, sem mér finnst mjög skrítið því ég er bara 25 ára ennþá....

Ég er búin að umturna íbúðinni...búin að breyta Hlæjandi  Mæli eindregið með því, það er mjög hollt!  Við erum búin að búa hérna síðan 1.10.05 og mér fannst kominn timi á breytingu og þetta er bara miklu betra! 

Jæja ég held að ég sé orðin nógu syfjuð til að skríða undir sængina núna...

Blogga meira seinna! 

Kveðja,
Dóra

Prófíll

  • Nafn: Dóra
  • Staður: Keflavík
  • Atvinna: Leikskólakennari
  • Hjúskaparstaða: Gift

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

SIMS 2 tenglarnir mínir

Klukkan