Já já ţetta kemur međ volga vatninu
31. október 2008 klukkan 22:40
Ég er nú ekkert sérlega virk hérna upp á síðkastið, ef þið hafið ekki tekið eftir því. Mig langar svolítið til að deila einu af áhugamálunum mínum með ykkur. Ég hef haft eitt ákveðið áhugamál hátt í tvö ár. Það er í tengslum við einn ákveðinn tölvuleik, sem nefnist SIMS 2 - nú bið ég ykkur að lesa með opnum huga. Við verðum öll að eiga áhugamál ekki satt? Ég veit að ég væri orðin klikkuð ef ég ætti ekki þetta áhugamál og allt sem því fylgir.
SIMS 2 samanstendur af einum grunnleik og 8 viðbætum - ég á þetta allt saman! Ég spila ekki alltaf leikinn, því ég byggi mikið í honum og deili því sem ég byggi í netsamfélagi sem ég er stór hluti af. En ég hef upp á síðkastið haft svolítið gaman af því að spila með eina ætt í leiknum - er komin nokkuð langt í kynslóðunum. En ég ætla nú ekki að fara að útskýra leikinn hérna frá A til Ö. Mig langar miklu frekar að deila því ég sem ég hef gert og hvað ég orðin hluti af.
Það er eitt samfélag á netinu sem ég eyði töluverðum tíma í, það heitir Reflexsimsforum. www.reflexsimsforum.com - þar er ég undir notandanum Doram - Síðan er reyndar niðri sem stendur, eigandi síðunnar var að uppfæra og eitthvað fór úrskeiðis. Ég er þar orðin hluti af starfsfólkinu, sem heldur þessu netsamfélagi gangandi. Ég veit ekki hvað ég á að kalla þetta á íslensku, en ég er Super-Moderator á Reflexsimsforum og er líka einn af hönnuðunum þar - Á mitt svæði þarna í Designer Inc. og þar set ég inn í hús og annað sem ég skapa og vill deila með SIMS 2 samfélaginu. Ég á þarna orðið mjög góða vini sem hugga mann þegar manni líður illa og samgleðjast þegar vel gengur. Alveg eins og allir aðrir vinir minir, nema þarna á ég vini sem eru í Ástralíu, Danmörku, Bretlandi, Bandaríkjunum, Króatíu og fleiri stöðum.
Gunnari finnst þetta voðalega asnalegt allt saman - gerir bara grín af þessu - hann um að! Enda deili ég þessu ekki með honum.
Þegar síðan kemur upp aftur, sem verður vonandi á morgun set ég upp linka á það sem viðkemur mér þarna. En mig langar samt til að deila einhverjum myndum með ykkur....hérna eru albúm með húsum sem ég hef byggt og skreytt....
Þegar ég byggi hús, byggi ég hús eftir alvöru húsateikningum og nota netið til þess að finna hús.
Þetta var fyrir keppni sem ég tók þátt í
Hús sem ég byggði um daginn og deildi á svæðinu mínu
Ég byggði húsið sem við vorum í úti á Spáni í sumar - nema ég gerði það að tvíbýli
Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili
Kveðja
Dóra