Er ađ reyna
Annars sváfum við mæðgurnar ágætlega ef frá eru talin þau símtöl frá honum Trausta úti í Noregi um klukkan 1:30 í nótt, og í fyrst spurði hann voða hissa...."Varstu sofandi???" hehehehe. Við fórum auðvitað á fætur um klukkan 8 og ég leyfði manninum mínum að sofa lengur (er ég ekki góð?), töluvert MIKIÐ lengur.
Það er Þinghólsskóla partý næstu helgi, þar sem árgangarnir '71 til '75 ætla að hittast á Áslák í Mosfellsbæ, er búin að segja kannski að ég fari en ég er ekki að nenna þangað, alla vega ekki núna. En það er eitt sem mig langar í, það er ein helgi án barna.....kannski gerist það einhvern tíman...eftir 16 ár!
Jæja ég ætla að fá mér vöfflu og köku hjá mömmu og pabba......
Upprennandi ljósmyndari?
Ég verð heima á morgun, Jóhanna Arna er búin að ná sér í einhvern vírus í hálsinn sem er smitandi í ca 2 daga. Við eigum að fylgjast með henni og ef hún neitar að borða og drekka, verðum við að fara með hana inneftir á barnaspítala, því þar er lyf sem deyfir hálsinn. Læknirinn sagði þetta vera mjög sársaukafulla hálsbólgu og það kæmi honum ekki á óvart ef hún missti niður matarlyst. Þannig að hann mælti með eingöngu fljótandi fæði núna og köldu til að deyfa hálsinn, svo að gefa henni verkjatöflur til að létta henni lífið.
Hún er nýbúin með lungnabólgu, nú þetta....hvað kemur næst???
Hvatvísi, hvađ er ţađ?
Hann Andri Þór virðist ekki alveg skilja afleiðingar gjörða sinna, eða þá að hann haldi að allir veggir, húsgögn og hurðir séu eins og tússtöflur. Hann var búinn að tússa með svörtum túss á hurðina að herberginu þeirra, á parketið, á rúmið sitt og á nokkur leikföng í morgun - við náðum af parketinu, en ekki af hurðinni, rúminu og dótinu hans. Þetta var CD túss, ekki túss sem fer af með vatni eins og notað er á tússtöflur. Hann er vanur tússtöflu í leikskólanum. Að gefnu tilefni, erum við búin að fela alla tússliti, blýanta og aðra liti! Hvatvísin í öllu sínu veldi - að framkvæma áður en að hugsa.
Börnin fóru í klippingu á föstudaginn, enda löngu kominn tími til. Þau voru eins og englar. Andri Þór var kominn með góðann lubba. Ég vildi óska að þau gætu skipt um hárgerð - Andri Þór fékk sömu hárgerð og pabbi sinni - ekta hár til að dúllast með, þykkt og liðað. Jóhanna Arna erfði mína hárgerð, fíngert hár - hryllingur að setja teygju í þetta hár! Hún leyfir mér það einstaka sinnum.
Ég þarf að versla nýtt skjákort í vikunni. Ég slökkti á tölvunni minni á föstudagskvöldið, allt í lagi með allt (að ég hélt). Þegar ég startaði henni á laugardagsmorgun, fékk ég bara á skjáinn "check cable". Keypti nýjan kapal, gekk ekki. Þá var það annað hvort skjárinn eða skjákortið. Fékk mömmu í heimsókn í morgun með sinn skjá, tengdi hann og fékk "no signal" á skjáinn. Þar með var ég búin að útiloka kapalinn og skjáinn, þannig að það er skjákortið. Skjákortið er aðeins ódýrari en skjár.
Jóhönnu gengur ágætlega að hætta með bleyju - samt nokkuð um slys í dag. En við ætlum að byrja með umbunarkerfi fyrir hana - límmiði í hvert skipti sem hún pissar og kúkar í klósettið. Sá þessa fínu Latabæjar og Dóru límmiða úti í Bónus.
Fékk ţann stóra!!
Ég var í foreldraviðtali á mánudaginn. Jóhanna Arna er auðvitað alveg frábær og við erum núna að losa okkur við bleyjuna, um að gera í þessari kreppu að losna við bleyjukaup. Það gengur alveg ágætlega. Hún er alltaf ánægð í leikskólanum, dálítið skapstór og ákveðin en alger prinsessa og er alveg sama í hvaða aðstæðum hún er sett í, hún er alveg örugg og skemmtileg! Elskar að púsla, syngja og teikna. Svolítið eins og mamma sín.....
Andri Þór er frábær strákur! Eftir að hann fékk stuðning þá hefur honum farið mjög mikið fram, hann er orðinn öruggur í sínum hópi og er aðeins farinn að tengjast strákunum. Hann er með áráttu fyrir brunavörnum þessa dagana, við megum ekki fara í búðir þá er hann búinn að skanna búðina til að finna alla útgönguleiðir, brunaboða, brunaslöngur o.sv.frv. Hann er mjög rökfastur, á meðan hann er slakur á einu sviði er hann mjög sterkur á öðru. Það er mjög algengt með börn sem eru með einhverjar raskanir, þau bæta það upp. Hann fór í heimsókn í grunnskólann sem hann fer í, í dag með skólahópunum tveimur og kennurum sínum. Hann fer í Holtaskóla.
Jóhanna Arna er nýrisin upp úr veikindum, fékk lungnabólgu þessi elska og var ekki í leikskólanum í tvær vikur. En núna verð ég að hætta að skrifa, klukkan er 3, ég er andvaka en dóttir mín var að skríða upp í mína holu og hún vill fá mömmu sína.
Skrifa meira á morgun, aldrei þessu vant hef ég frá einhverju að segja!
